Biblíulestur 29. janúar – Opb 5.1–14
Í hægri hendi hans, er í hásætinu sat, sá ég bók sem ritað var á báðum megin og innsiglaða sjö innsiglum. Og ég sá sterkan engil sem kallaði hárri röddu: „Hver er þess verður að ljúka upp bókinni og rjúfa innsigli hennar?“ En enginn var sá á himni eða jörðu eða undir jörðunni sem lokið gæti upp bókinni og litið í hana. Og ég grét stórum af því að enginn reyndist maklegur að ljúka henni upp og líta í hana. En einn af öldungunum segir við mig: „Grát þú eigi! Sjá, sigrað hefur ljónið af Júda ættkvísl, rótarkvistur Davíðs. Hann getur lokið upp bókinni og rofið innsigli hennar sjö.“
Þá sá ég lamb, sem virtist hafa verið slátrað, standa fyrir miðju hásætinu milli veranna fjögurra og öldunganna. Það hafði sjö horn og sjö augu, og eru það sjö andar Guðs sem eru sendir út um alla jörðina. Lambið kom og tók við bókinni úr hægri hendi hans er í hásætinu sat. Þegar það hafði tekið við henni féllu verurnar fjórar og öldungarnir tuttugu og fjórir niður frammi fyrir lambinu. Þeir höfðu hver um sig hörpu og héldu á gullskálum fullum af reykelsi. Það eru bænir hinna heilögu. Og þeir sungu nýjan söng:
Verður ert þú að taka við bókinni
og rjúfa innsigli hennar
því að þér var slátrað
og með blóði þínu keyptir þú Guði til handa menn
af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.
Og þú gerðir þá að konungum og prestum Guði vorum til handa.
Og þeir munu ríkja á jörðunni.
Þá sá ég og heyrði raust margra engla sem stóðu hringinn í kringum hásætið og verurnar og öldungana og tala þeirra var tíu þúsundir tíu þúsunda og þúsundir þúsunda. Þeir sögðu með hárri röddu:
Maklegt er lambið slátraða
að fá máttinn og ríkdóminn, visku og kraft,
heiður og dýrð og lofgjörð.
Þá heyrði ég að allt sem skapað er á himni og jörðu, undir jörðunni og á hafinu, og allt sem í þeim er, tók undir og sagði:
Honum, sem í hásætinu situr, og lambinu,
sé lof og heiður, dýrð og kraftur um aldir alda.
Og verurnar fjórar sögðu: „Amen.“ Og öldungarnir féllu fram og tilbáðu.
Biblíulestur 29. mars – 2Mós 16.22–36
Sjötta daginn söfnuðu þeir helmingi meira en hina dagana, tveimur gómerum á mann. Þegar allir leiðtogar fólksins komu og tjáðu Móse það sagði hann við þá: „Þetta er það sem [...]
Biblíulestur 28. mars – Matt 26.17–30
Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: „Hvar vilt þú að við búum þér páskamáltíðina?“ Hann mælti: „Farið til ákveðins manns í borginni og segið við [...]
Biblíulestur 28. mars – 2Mós 16.13–21
Um kvöldið komu lynghænsn og þöktu búðirnar en morguninn eftir hafði dögg fallið umhverfis búðirnar. Þegar döggin þornaði lá eitthvað fínkornótt yfir eyðimörkinni líkt og héla. Þegar Ísraelsmenn sáu það [...]
Biblíulestur 27. mars – Jóh 13.1–17
Hátíð páskanna var að ganga í garð. Jesús vissi að stund hans var komin og að hann færi burt úr þessum heimi til föðurins. Hann hafði elskað sína, þá sem [...]
Biblíulestur 27. mars – 2Mós 16.1–12
Því næst lögðu þeir af stað frá Elím. Allur söfnuður Ísraelsmanna kom inn í Síneyðimörkina, sem er milli Elím og Sínaí, á fimmtánda degi annars mánaðarins eftir brottför þeirra úr [...]
Biblíulestur 26. mars – Matt 17.14–21
Þegar þeir komu til fólksins gekk maður til Jesú, féll á kné fyrir honum og sagði: „Drottinn, miskunna þú syni mínum. Hann er tunglsjúkur og illa haldinn. Oft fellur hann [...]