Biblíulestur 17. mars – Hlj 2.11–17
Augu mín daprast af gráti,
ég ólga hið innra
og galli mínu er úthellt á jörðina
sökum tortímingar dótturinnar, þjóðar minnar,
börn og brjóstmylkingar hníga magnþrota niður
á strætum borgarinnar.
Þau segja við mæður sínar:
„Hvar er korn og vín?“
þar sem þau hníga máttvana niður eins og helsárir menn
á strætum borgarinnar.
Þau gefa upp öndina
í faðmi mæðra sinna.
Hvernig get ég hughreyst þig, við hvað líkt þér,
dóttirin Jerúsalem?
Hverju á ég að jafna við þig til að hugga þig,
mærin Síonardóttir?
Sár þitt er stórt eins og hafið,
hver gæti læknað þig?
Sýnir spámanna þinna um þig
voru tál og blekking.
Þeir afhjúpuðu ekki misgjörð þína
til þess að snúa við högum þínum
heldur birtu þér spár
sem voru tál og ginningar.
Allir sem fram hjá fara
skella saman lófum,
fussa og hrista höfuðið
yfir dótturinni Jerúsalem:
„Er þetta borgin, hin alfagra,
yndi gervallrar jarðar?“
Allir óvinir þínir
glenna upp ginið gegn þér,
fussa og gnísta tönnum
og segja: „Vér höfum afmáð hana!
Þetta er dagurinn langþráði,
vér lifðum það að sjá hann!“
Drottinn hefur gert það sem hann ásetti sér,
látið það rætast
sem hann varaði við forðum daga.
Vægðarlaust hefur hann rifið niður,
látið óvinina hlakka yfir þér
og hafið horn fjandmanna þinna.
Biblíulestur 17. maí – 1Tím 6.11–21
En þú, Guðs maður, forðast þú þetta en stunda réttlæti, guðrækni, trú, kærleika, stöðuglyndi og hógværð. Berstu trúarinnar góðu baráttu, höndla þú eilífa lífið sem þú varst kallaður til og [...]
Biblíulestur 16. maí – 2Mós 33.12–23
Móse sagði við Drottin: „Þú sagðir við mig: Leiddu þetta fólk upp eftir. En þú hefur ekki sagt mér hvern þú ætlar að senda með mér. Samt sagðir þú sjálfur: [...]
Biblíulestur 15. maí – 2Mós 24.1–18
Guð sagði við Móse: „Gakk upp til Drottins, þú sjálfur, Aron, Nadab, Abíhú og sjötíu af öldungum Ísraels. Þið skuluð falla fram álengdar. Móse einn skal nálgast Drottin en hinir [...]
Biblíulestur 14. maí – Lúk 11.5–13
Og Jesús sagði við þá: „Nú á einhver yðar vin og fer til hans um miðnætti og segir við hann: Vinur, lánaðu mér þrjú brauð því að vinur minn er [...]
Biblíulestur 13.5.2023 – Slm 50.1–15
Guð, Drottinn Guð, talar, kallar á jörðina frá sólarupprás til sólarlags. Frá Síon, ímynd fegurðarinnar, birtist Guð í geisladýrð. Guð vor kemur og þegir ekki, fyrir honum fer eyðandi eldur [...]
Biblíulestur 12. maí – 2Mós 3.1–6
Móse gerðist fjárhirðir hjá tengdaföður sínum, Jetró, presti í Midían. Einu sinni rak hann féð langt inn í eyðimörkina og kom að Hóreb, fjalli Guðs. Þá birtist honum engill Guðs [...]