Biblíulestur 2. maí – Slm 119.33–48
Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna
og ég mun fylgja honum allt til enda.
Veit mér skilning til að halda lögmál þitt
og varðveita það af öllu hjarta.
Leið mig götu boða þinna,
af henni hef ég yndi.
Hneig hjarta mitt að fyrirmælum þínum
en ekki að illa fengnum gróða.
Snú augum mínum frá hégóma,
veit mér líf á vegum þínum.
Efn heit þitt við þjón þinn
svo að ég megi óttast þig.
Nem burt háðungina sem ég skelfist
því að ákvæði þín eru góð.
Sjá, ég þrái fyrirmæli þín,
lífga mig með réttlæti þínu.
Lát náð þína koma yfir mig, Drottinn,
hjálpræði þitt samkvæmt fyrirheiti þínu,
svo að ég megi svara þeim sem smána mig
því að ég treysti orði þínu.
Tak ekki orð sannleikans úr munni mér
því að ég setti von mína á dóma þína.
Ég vil stöðugt varðveita lögmál þitt
um aldur og ævi.
Ég mun ganga um víðlendi
því að ég leita fyrirmæla þinna.
Ég mun vitna um boð þín frammi fyrir konungum
og eigi fyrirverða mig.
Ég finn unað í boðum þínum,
þeim er ég elska.
Ég rétti út hendurnar móti boðum þínum,
þeim er ég elska,
og íhuga lög þín.
Biblíulestur 28. janúar – Matt 19.27–30
Þá sagði Pétur við hann: „Við yfirgáfum allt og fylgdum þér. Hvað munum við hljóta?“ Jesús sagði við þá: „Sannlega segi ég ykkur: Þegar Guð hefur endurnýjað allt og Mannssonurinn [...]
Biblíulestur 27. janúar – Okv 17.1–9
Betri er þurr brauðbiti í næði en veisla í húsi fullu af deilum. Hygginn þræll mun drottna yfir spilltum syni og taka erfðahlut með bræðrunum. Deiglan er fyrir silfrið og [...]
Biblíulestur 26. janúar – 1Jóh 4.1–10
Þið elskuðu, trúið ekki öllum sem segjast hafa andann, reynið þá heldur og komist að því hvort andinn sé frá Guði. Því margir falsspámenn eru farnir út í heiminn. Af [...]
Biblíulestur 25. janúar – Róm 11.11–24
Nú spyr ég: Hrösuðu þá Ísraelsmenn til þess að falla að fullu? Fjarri fer því. Fall þeirra varð heiðingjum hjálpræði. Það átti að vekja afbrýði hjá Gyðingum. Hafi fall þeirra [...]
Biblíulestur 24. janúar – Mrk 12.1–12
Þá tók Jesús að segja þeim dæmisögu: „Maður plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og fór úr [...]
Biblíulestur 23. janúar – Jes 5.1–7
Ég vil kveða um ástvin minn, ástarkvæði um víngarð hans. Ástvinur minn átti víngarð á frjósamri hæð. Hann stakk upp garðinn, tíndi úr honum grjótið, gróðursetti gæðavínvið. Hann reisti turn [...]