Biblíulestur 3. maí – Jóh 15.12–17
Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. Þér eruð vinir mínir ef þér gerið það sem ég býð yður. Ég kalla yður ekki framar þjóna því þjónninn veit ekki hvað húsbóndi hans gerir. En ég kalla yður vini því ég hef kunngjört yður allt sem ég heyrði af föður mínum. Þér hafið ekki útvalið mig heldur hef ég útvalið yður. Ég hef ákvarðað yður til að fara og bera ávöxt, ávöxt sem varir svo að faðirinn veiti yður sérhvað það sem þér biðjið hann um í mínu nafni. Þetta býð ég yður, að þér elskið hvert annað.
Biblíulestur 3. febrúar – Slm 69.8–19
Þín vegna ber ég háðung svo að andlit mitt roðnar af blygðun. Ég er ókunnur orðinn bræðrum mínum og framandi sonum móður minnar. Vandlæting vegna húss þíns hefur tært mig [...]
Biblíulestur 2. febrúar – Lúk 13.22–30
Og Jesús hélt áfram til Jerúsalem, fór um borgir og þorp og kenndi. Einhver sagði við hann: „Drottinn, eru þeir fáir sem hólpnir verða?“ Jesús sagði við þá: „Kostið kapps [...]
Biblíulestur 1. febrúar – 1Jóh 1.1–10
Efni vort er það sem var frá upphafi, það sem við höfum heyrt, það sem við höfum séð með augunum, það sem við horfðum á og hendurnar þreifuðu á, það [...]
Biblíulestur 31. janúar – Jer 23.1–8
Vei hirðunum sem leiða sauðina afvega og tvístra hjörðinni sem ég gæti, segir Drottinn. Þess vegna segir Drottinn, Guð Ísraels, um hirðana sem gæta þjóðar minnar: Þér hafið tvístrað sauðum [...]
Biblíulestur 30. janúar – 2Sam 7.1–17
Þegar konungur var sestur að í húsi sínu og Drottinn hafði veitt honum frið við alla óvini umhverfis sagði hann við Natan spámann: „Þú sérð að ég bý í húsi [...]
Biblíulestur 29. janúar – 5Mós 18.9–22
Þegar þú kemur inn í landið sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér skaltu ekki temja þér sömu svívirðingar og þjóðirnar þar. Á meðal ykkar má enginn finnast sem lætur son [...]