Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 24. október – Slm 133 og 134

Sálmur 133
Sjá, hversu fagurt og yndislegt það er
þegar bræður búa saman.
Það líkist ágætri olíu á höfði
sem drýpur niður í skeggið, skegg Arons,
og fellur niður á klæðafald hans.
Það líkist dögg af Hermonfjalli
er fellur niður á Síonarfjöll.
Því að þar hefur Drottinn boðið út blessun,
líf að eilífu.

Sálmur 134
Lofið Drottin, allir þjónar Drottins,
þér sem standið í húsi Drottins um nætur.
Lyftið höndum til helgidómsins
og lofið Drottin.
Drottinn blessi þig frá Síon,
hann sem skapaði himin og jörð.

Biblíulestur 5. september – Slm 126

Þegar Drottinn sneri við hag Síonar var sem oss dreymdi. Þá fylltist munnur vor hlátri og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna: „Mikla hluti hefur Drottinn gert við [...]

Fara efst