Síðan skaltu brjóta krúsina fyrir augum þeirra sem fara með þér og segja við þá: Svo segir Drottinn hersveitanna: Ég brýt þessa þjóð og þessa borg eins og þegar leirker er brotið svo að það verði ekki gert heilt aftur. Í Tófet verða svo margir jarðaðir að ekkert rúm verður þar til að grafa fleiri. Þannig mun ég fara með þennan stað og íbúa hans, segir Drottinn, svo að þessi borg verði eins og Tófet. Húsin í Jerúsalem og hús Júdakonunga skulu verða óhrein eins og þessi staður, Tófet, öll húsin þar sem öllum himinsins her hafa verið færðar reykelsisfórnir á þökunum og öðrum guðum dreypifórnir.
Þegar Jeremía kom frá Tófet þangað sem Drottinn hafði sent hann til að flytja boðskap sinn tók hann sér stöðu í forgarði húss Drottins og ávarpaði allan söfnuðinn:
Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Ég sendi alla þá ógæfu, sem ég hef hótað, yfir þessa borg og borgirnar, sem henni heyra til, vegna þess að íbúarnir hafa þverskallast við og ekki hlýtt á orð mín.
Pashúr Immersson prestur, sem var yfirumsjónarmaður í húsi Drottins, heyrði Jeremía flytja þessa ræðu. Hann lét því húðstrýkja Jeremía spámann og setja hann í gapastokkinn sem var í efra Benjamínshliðinu við hús Drottins. Þegar Pashúr sleppti Jeremía úr gapastokknum morguninn eftir sagði Jeremía við hann: „Drottinn nefnir þig ekki lengur Pashúr heldur Skelfingu hvarvetna. Því að svo segir Drottinn: Ég geri þig að skelfingu fyrir sjálfan þig og alla vini þína. Þeir munu falla fyrir sverði fjandmanna sinna og þú munt horfa á það með eigin augum. Ég mun selja allt Júda í hendur konungsins í Babýlon. Hann mun flytja íbúana í útlegð til Babýlonar og höggva þá með sverði. Ég framsel allan auð þessarar borgar, allar eignir hennar, alla dýrgripi hennar og alla fjársjóði Júdakonunga í hendur fjandmanna þeirra. Þeir munu taka það herfangi og flytja til Babýlonar. En þú, Pashúr, ferð í útlegð ásamt öllum sem búa í húsi þínu. Þú ferð til Babýlonar þar sem þú deyrð og verður grafinn, þú og allir vinir þínir sem þú hefur boðað lygi.“