Biblíulestur 23. október – Jer 33.1–13
Orð Drottins kom öðru sinni til Jeremía á meðan hann var enn í haldi í garði varðliðsins: Svo segir Drottinn sem skapaði jörðina, mótaði hana og grundvallaði. Nafn hans er Drottinn: Hrópaðu til mín! Ég mun bænheyra þig og ég mun kunngjöra þér mikla hluti og leyndardómsfulla sem þú hefur ekki áður þekkt. Því að svo segir Drottinn, Guð Ísraels, um húsin í þessari borg og um hús Júdakonunga sem hafa verið rifin niður til að gera úr þeim varnargarð gegn árásarvirkjunum og sverðinu: Kaldear ryðjast inn, gera árás til að fylla húsin með líkum þeirra sem ég felli í heift minni og reiði því að ég hef byrgt auglit mitt fyrir þessari borg vegna illsku íbúanna.
Ég græði sár þeirra og lækna þá. Ég geri þá heila og opinbera þeim mikla hagsæld og velgengni. Ég mun snúa við hag Júda og Ísraels og endurreisa þá svo að þeir verði eins og áður.
Ég hreinsa þá af allri þeirri sekt sem þeir hafa bakað sér með því að syndga gegn mér. Ég fyrirgef þeim allar syndir þeirra gegn mér, sem þeir hafa drýgt með því að rísa gegn mér. Þá verður Jerúsalem mér til gleði, lofs og dýrðar meðal allra þjóða jarðarinnar þegar þær frétta um allt það góða sem ég geri henni. Þær munu titra og skjálfa vegna alls hins góða og þeirrar velgengni sem ég veiti borginni.
Svo segir Drottinn:
Um þennan stað segið þér: „Hann er í rústum án fólks og fénaðar.“ En á þessum stað, í borgum í Júda og á götum Jerúsalem, mannauðum, án fólks og fénaðar, munu aftur kveða við gleðihróp og fagnaðaróp, hróp brúðguma og brúðar, raddir þeirra sem færa þakkarfórn í húsi Drottins og segja: „Þakkið Drottni hersveitanna því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.“ Ég mun snúa högum landsins, það skal verða eins og áður, segir Drottinn.
Svo segir Drottinn hersveitanna: Á þessum stað, sem er rústir einar, án fólks og fénaðar, og í öllum bæjunum umhverfis verður aftur haglendi fyrir hirða til að hvíla hjarðir sínar. Í fjalllendinu, í borgunum á láglendinu, í borgunum í Suðurlandinu, í landi Benjamíns, í héruðunum umhverfis Jerúsalem og í borgunum í Júda mun féð að nýju renna fram hjá þeim sem telur það, segir Drottinn.
Biblíulestur 2. september – Jer 16.19–17.13
Drottinn, styrkur minn og vígi, athvarf mitt á degi neyðarinnar. Til þín koma þjóðirnar frá endimörkum jarðar og segja: „Arfur feðra vorra var tál, guðir þeirra vindur sem engum hjálpar.“ [...]
Biblíulestur 1. september – Jer 16.1–18
Orð Drottins kom til mín: Þú skalt ekki taka þér eiginkonu og hvorki eignast syni né dætur á þessum stað. Því að svo segir Drottinn um syni og dætur sem [...]
Biblíulestur 31. ágúst – Jer 15.12–21
Verður járn mölbrotið, járn að norðan, og eir? Ég framsel auð þinn og fjársjóði sem herfang, það er endurgjald fyrir allar syndir þínar sem þú hefur drýgt um allt land [...]
Biblíulestur 30. ágúst – Matt 5.43–48
Þér hafið heyrt að sagt var: Þú skalt elska náunga þinn og hata óvin þinn. En ég segi yður: Elskið óvini yðar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja yður. Þannig [...]
Biblíulestur 29. ágúst – Okv 31.1–9
Orð Lemúels konungs í Massa sem móðir hans kenndi honum: Hvað á ég að segja þér, sonur minn, sonur kviðar míns, sonur áheita minna? Gefðu konum ekki kraft þinn, þrek [...]
Biblíulestur 28. ágúst – Jer 15.1–11
Drottinn sagði við mig: Þó að Móse og Samúel stæðu fyrir augliti mínu vildi ég ekki skipta mér af þessu fólki. Rektu þá frá augliti mínu, þeir eiga að fara [...]