Biblíulestur 25. október – Jóh 4.34–38
Jesús sagði við þá: „Minn matur er að gera vilja þess sem sendi mig og fullna verk hans. Segið þið ekki: Enn eru fjórir mánuðir, þá kemur uppskeran? En ég segi ykkur: Lítið upp og horfið á akrana, þeir eru fullþroskaðir til uppskeru. Sá sem upp sker tekur þegar laun og safnar ávexti til eilífs lífs. Þá getur sá sem sáir samfagnað þeim sem upp sker. Hér sannast orðtakið: Einn sáir og annar upp sker. Ég sendi ykkur að skera upp það sem þið hafið ekki unnið við. Aðrir hafa erfiðað en þið njótið erfiðis þeirra.“
Biblíulestur 14. september – Jer 22.13–23
Vei þeim sem byggir hús sitt með ranglæti, sali sína með rangindum og lætur landa sinn þræla án launa og greiðir honum ekkert. Hann segir: „Ég byggi mér stórt hús [...]
Biblíulestur 13. september – Lúk 10.38–42
Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkurt og kona að nafni Marta bauð honum heim. Hún átti systur er María hét og settist hún við fætur Drottins og hlýddi [...]
Biblíulestur 12. september – Slm 127
Ef Drottinn byggir ekki húsið erfiða smiðirnir til ónýtis. Ef Drottinn verndar eigi borgina vakir vörðurinn til ónýtis. Það er yður til einskis að rísa upp árla og ganga seint [...]
Biblíulestur 11. september – Jer 22.1–12
Svo segir Drottinn: Farðu niður að höll Júdakonungs og segðu: Hlýddu á orð Drottins, Júdakonungur, sem situr í hásæti Davíðs, þú sjálfur, hirðmenn þínir og þjóð, þér sem gangið um [...]
Biblíulestur 10. september – Jer 21.1–14
Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni þegar Sedekía konungur sendi Pashúr Malkíason og Sefanía prest Maasejason til hans með þessa orðsendingu: Leitaðu ráða hjá Drottni fyrir oss því að [...]
Biblíulestur 9. september – Jer 20.7–18
Þú blekktir mig, Drottinn, og ég lét blekkjast, þú tókst mig tökum og barst hærri hlut. Ég verð sífellt að athlægi, allir hæða mig. Í hvert skipti sem ég tala [...]