Biblíulestur 17. júlí – Jer 4.11–21
Á þeim tíma verður sagt við þessa þjóð og við Jerúsalem:
Glóandi vindur kemur af nöktum hæðum í eyðimörkinni
yfir dóttur þjóðar minnar,
ekki vindur til að sáldra korni eða hreinsa,
heldur miklu öflugri vindur
sem kemur samkvæmt skipun minni.
Nú kveð ég sjálfur upp dóm yfir þeim.
Sjá, óvinurinn kemur sem óveðursský,
stríðsvagnar hans líkjast hvirfilvindi,
hestarnir eru frárri en ernir.
Vei oss. Það er úti um oss.
Hreinsaðu illskuna af hjarta þér, Jerúsalem,
svo að þú bjargist.
Hversu lengi eiga gerspilltar hugsanir
að búa í brjósti þér?
Rödd hljómar frá Dan,
ófarir boðaðar frá Efraímsfjöllum.
Kunngjörið þjóðunum,
boðið Jerúsalem:
Úr fjarlægu landi koma fjandmenn,
þeir hrópa heróp gegn borgunum í Júda.
Þeir umkringja borgina eins og þeir sem vaka yfir akri
því að hún hefur boðið mér birginn, segir Drottinn.
Hegðun þín og háttalag hefur leitt þetta yfir þig.
Það er þín eigin illska sem gerir þér lífið biturt
og gengur þér til hjarta.
Ég kvelst, ég kvelst hið innra,
engist sundur og saman.
Hjartað hamast, berst í brjósti mér,
ég get ekki þagað
því að ég heyri lúðurhljóm og heróp
Hrópað er: Hrun á hrun ofan,
því að herjað er á allt landið.
Tjöld mín eru eydd á svipstundu,
tjalddúkarnir í einu vetfangi.
Hversu lengi þarf ég að horfa á gunnfána,
hlusta á lúðurhljóm?
Biblíulestur – 7. apríl – 1Kor 8.1–13
Þá er að minnast á kjötið sem fórnað hefur verið skurðgoðum. Við vitum að öll höfum við þekkingu. Þekkingin blæs menn upp en kærleikurinn byggir upp. Ef einhver þykist þekkja [...]
Biblíulestur – 6. apríl – Jóh 8.46–59
Hver yðar getur sannað á mig synd? Ef ég segi sannleikann, hví trúið þér mér ekki? Sá sem er af Guði heyrir Guðs orð. Þér heyrið ekki vegna þess að [...]
Biblíulestur – 5. apríl – Slm 97.1–12
Drottinn er konungur, jörðin fagni, eyjafjöldinn gleðjist. Ský og sorti umlykja hann, réttlæti og réttur eru grundvöllur hásætis hans. Eldur fer fyrir honum og eyðir fjandmönnum hans allt um kring. [...]
Biblíulestur – 4. apríl – 1Kor 7.29–40
En það segi ég, systkin, tíminn er orðinn naumur. Hér eftir skulu jafnvel þau sem gift eru vera eins og þau væru það ekki, þau sem gráta eins og þau [...]
Biblíulestur – 3. apríl – 1Kor 7.17–28
Þó skal hver og einn lifa því lífi sem Drottinn hefur úthlutað honum og vera áfram í þeirri stöðu sem hann var í þegar Guð kallaði hann. Þannig mæli ég [...]
Biblíulestur – 2. apríl – 1Kor 7.1–16
En svo að ég minnist á það sem þið hafið ritað, þá er það gott fyrir mann að vera ekki við konu kenndur. En til þess að forðast saurlífi hafi [...]