Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 16. júlí – Jer 4.1–10

Ef þú snýrð aftur, Ísrael, segir Drottinn,
skaltu snúa aftur til mín.
Ef þú losar þig við viðurstyggilega guði þína
og ferð ekki lengur villur vega
þarftu ekki að flýja mig,
ef þú sverð í einlægni, rétt og réttvíslega:
„Svo sannarlega sem Drottinn lifir,“
munu þjóðirnar njóta blessunar hans
og hrósa sér af honum.
Því að svo segir Drottinn
við Júdamenn og Jerúsalembúa:
Brjótið nýtt land,
sáið ekki meðal þyrna.
Umskerið yður fyrir Drottni,
fjarlægið yfirhúð hjartna yðar,
þér Júdamenn og Jerúsalembúar.
Annars brýst reiði mín út sem logandi eldur,
bál sem enginn getur slökkt,
sakir illra verka yðar.

Boðið þetta í Júda, kunngjörið það í Jerúsalem,
þeytið hafurshorn í landinu,
hrópið fullum rómi og segið:
Safnist saman.
Vér hörfum inn í víggirtar borgirnar.
Reisið hermerkið: Til Síonar.
Flýið, tefjið ekki.
Því að ég sendi mikið böl úr norðri, tortímingu.
Ljónið er risið upp úr kjarrinu,
þjóðamorðinginn er lagður af stað.
Hann er farinn úr landi sínu
til að gera land þitt að auðn.
Borgir þínar verða lagðar í rúst, mannlausar.
Gyrðist því hærusekk, grátið og kveinið
því að glóandi reiði Drottins er ekki horfin frá oss.
Á þeim degi, segir Drottinn,
mun hugrekki konungsins
og kjarkur höfðingjanna bresta,
prestarnir verða agndofa af skelfingu,
spámennirnir stjarfir af ótta.
Þeir segja: Æ, Drottinn Guð.
Illa blekktir þú þetta fólk og Jerúsalem
er þú sagðir: Yður mun farnast vel,
en vér erum með sverð reitt að hálsi.

Biblíulestur 31. mars – Est 3.1–11

Eftir þennan atburð hækkaði Xerxes konungur Haman, son Hamdata og afkomanda Agags, í tign, hóf hann til mikilla metorða og setti hann yfir aðra höfðingja sína. Að skipan konungs skyldu [...]

Biblíulestur 30. mars – Est 2.8–23

Þegar tilskipanir og boð konungs urðu kunn var mörgum stúlkum safnað saman til hallar konungs í Súsa í umsjá Hegaí, þess sem gætti kvennabúrsins, og var Ester í hópi þeirra. [...]

Biblíulestur 29. mars – Mrk 14.3–9

Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð [...]

Fara efst