Biblíulestur 18. júlí – Slm 119.161–176
Höfðingjar ofsækja mig að tilefnislausu
en hjarta mitt óttast orð þitt.
Ég gleðst yfir fyrirheiti þínu
eins og sá er fær mikið herfang.
Lygi hata ég og fyrirlít
en lögmál þitt elska ég.
Sjö sinnum á dag lofa ég þig
fyrir réttlát ákvæði þín.
Gnótt friðar hafa þeir er elska lögmál þitt
og þeim er við engri hrösun hætt.
Ég vænti hjálpræðis þíns, Drottinn,
og fer að boðum þínum.
Ég fylgi fyrirmælum þínum
og elska þau mjög.
Ég held boð þín og fyrirmæli
og allir vegir mínir eru þér kunnir.
Hróp mitt nálgist auglit þitt, Drottinn,
veit mér skilning samkvæmt orði þínu.
Grátbeiðni mín komi fyrir auglit þitt,
frelsa mig eins og þú hefur heitið.
Lofsöngur streymi af vörum mínum
því að þú kennir mér lög þín,
tunga mín syngi orði þínu lof
því að öll boð þín eru réttlát.
Hönd þín veiti mér lið
því að ég kaus fyrirmæli þín.
Ég þrái hjálpræði þitt, Drottinn,
og lögmál þitt er unun mín.
Gef mér að lifa að ég lofi þig
og reglur þínar veiti mér lið.
Ég villist eins og týndur sauður,
leita þú þjóns þíns
því að ég hef ekki gleymt boðum þínum.
Biblíulestur – Pálmasunnudagur 13. apríl – Jóh 12.1–16
Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum. Þar var honum búinn kvöldverður og Marta gekk um beina en Lasarus [...]
Biblíulestur – 12. apríl – Slm 98.1–9
Sálmur. Syngið Drottni nýjan söng því að hann hefur unnið dásemdarverk, hægri hönd hans hjálpaði honum og heilagur armur hans. Drottinn kunngjörði hjálpræði sitt og sýndi þjóðunum réttlæti sitt. Hann [...]
Biblíulestur – 11. apríl – 1Kor 10.19–11.1
Hvað segi ég þá? Að kjöt fórnað skurðgoðum sé nokkuð? Eða skurðgoð sé nokkuð? Nei, skurðgoðadýrkendur blóta illum öndum, ekki Guði. En ég vil ekki að þið hafið samfélag við [...]
Biblíulestur – 10. apríl – 1Kor 10.1–18
Ég vil ekki, systkin, að ykkur skuli vera ókunnugt um það að forfeður okkar voru allir undir skýinu og gengu allir yfir hafið. Allir voru þeir skírðir í skýinu og [...]
Biblíulestur – 9. apríl – 1Kor 9.15–27
En ég hef ekki hagnýtt mér neitt af þessu og ég skrifa þetta ekki heldur til þess að svo verði við mig gert. Mér væri betra að deyja. Enginn skal [...]
Biblíulestur – 8. apríl – 1Kor 9.1–14
Er ég ekki frjáls? Er ég ekki postuli? Hef ég ekki séð Jesú, Drottin vorn? Eruð þið ekki verk mitt sem ég hef unnið með hjálp Drottins? Þótt ég væri [...]