Biblíulestur 29. júlí – Jer 8.1–7
Þá, segir Drottinn, verða bein Júdakonunga, bein hirðmanna þeirra, bein presta og spámanna og Jerúsalembúa sótt í grafir þeirra. Þeim verður dreift móti sólinni, tunglinu og öllum her himinsins sem þeir elskuðu, þjónuðu og eltu, sem þeir leituðu úrskurðar hjá og tilbáðu. Þau verða hvorki tínd saman né grafin, þau skulu verða að áburði á akrinum. Allir sem eftir verða af þessari vondu kynslóð munu kjósa dauðann fremur en lífið, allir sem eftir verða á þeim fjölmörgu stöðum sem ég hef hrakið þá til, segir Drottinn hersveitanna.
Segðu því við þá:
Svo segir Drottinn:
Hvort falla menn og standa ekki upp aftur?
Snýr sá ekki við sem villist?
Hvers vegna hefur þetta fólk snúið baki við mér
fyrir fullt og allt?
Hvers vegna heldur það fast við svikin
og neitar að hverfa aftur til mín?
Ég lagði við hlustir og heyrði:
Þeir fara með lygi,
enginn iðrast illsku sinnar og spyr:
Hvað hef ég gert?
Allir æða áfram, hver sína leið
eins og hestur sem ryðst fram í orrustu.
Jafnvel storkurinn í loftinu
þekkir sinn ákveðna tíma,
dúfan, svalan og tranan
snúa aftur á réttum tíma.
En þjóð mín þekkir ekki
hvers Drottinn krefst.
Biblíulestur – 28. júní – Okv 24.11–22
Bjargaðu þeim sem leiddir eru til lífláts, þeim sem eru dæmdir til aftöku. Ef þú segir: „Vér vissum það ekki,“ mun þá ekki sá sem gaumgæfir hjörtun verða þess var [...]
Biblíulestur – 27. júní – Jóh 20.19–31
Um kvöldið þennan fyrsta dag vikunnar voru lærisveinarnir saman og höfðu læst dyrum af ótta við Gyðinga. Þá kom Jesús, stóð mitt á meðal þeirra og sagði við þá: „Friður [...]
Biblíulestur – 26. júní – Jóh 20.1–18
Fyrsta dag vikunnar kemur María Magdalena til grafarinnar svo snemma að enn var myrkur og sér steininn tekinn frá gröfinni. Hún hleypur því og kemur til Símonar Péturs og hins [...]
Biblíulestur – 25. júní – Jóh 19.28–42
Jesús vissi að allt var þegar fullkomnað. Þá sagði hann til þess að ritningin rættist: „Mig þyrstir.“ Þar stóð ker fullt af ediki. Hermennirnir vættu njarðarvött í ediki, settu hann [...]
Biblíulestur – 24. júní – Lúk 1.57–67, 76–80
Nú kom sá tími að Elísabet skyldi verða léttari og ól hún son. Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni og samfögnuðu henni. Á [...]
Biblíulestur – 23. júní – Jóh 19.17–27
Og hann bar kross sinn og fór út til staðar sem nefnist Hauskúpa, á hebresku Golgata. Þar krossfestu þeir hann og með honum tvo aðra hvorn til sinnar handar, Jesú [...]