Biblíulestur 28. júlí – Jer 7.16–34
Þú skalt ekki biðja fyrir þessari þjóð og hvorki hefja upp kveinstafi né grátbeiðni þeirra vegna. Þú skalt ekki leggja að mér því að ég hlusta ekki á þig. Sérðu ekki hvað þeir eru að gera í borgunum í Júda og á götunum í Jerúsalem? Börnin tína saman eldivið, feður þeirra kveikja eld og konurnar hnoða deig í fórnarkökur handa drottningu himinsins. Þeir færa öðrum guðum dreypifórnir til að skaprauna mér. En skaprauna þeir mér? segir Drottinn.
Skaprauna þeir ekki öllu fremur sjálfum sér og roðna af skömm? Því segir Drottinn: Reiði minni og heift verður úthellt yfir þennan stað, yfir menn og skepnur, yfir tré merkurinnar og ávexti akursins. Reiði mín mun brenna og ekki slokkna.
Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels:
Hlaðið brennifórnum yðar ofan á sláturfórnirnar og etið kjötið. Ég talaði hvorki við forfeður yðar né gaf þeim fyrirmæli um brennifórnir og sláturfórnir þegar ég leiddi þá út úr Egyptalandi. En ég gaf þeim þessi fyrirmæli: Hlýðið boðum mínum, þá verð ég Guð yðar og þér verðið lýður minn. Gætið þess að fylgja nákvæmlega þeim vegi sem ég hef boðið yður svo að yður vegni vel. En þeir heyrðu ekki og lögðu ekki við hlustir heldur fylgdu eigin ráðum í þverúð síns illa hjarta. Þeir sneru við mér baki, ekki andlitinu. Frá þeim degi, þegar forfeður yðar fóru út úr Egyptalandi og fram á þennan dag, hef ég stöðugt, aftur og aftur, sent yður alla þjóna mína, spámennina. En þeir hlustuðu ekki og lögðu ekki við eyrun heldur gerðust harðsvíraðir og breyttu enn verr en feður þeirra.
Þegar þú boðar þeim allt þetta munu þeir ekki hlusta. Þegar þú hrópar til þeirra munu þeir ekki svara þér. Þú skalt því segja við þá: Þetta er þjóðin sem hlustaði ekki á rödd Drottins, Guðs síns, og hlýddi ekki leiðsögn hans. Horfin er trúfestin, upprætt úr munni þeirra.
Skerðu af þér lokkana og fleygðu þeim, syngdu harmljóð á gróðurvana hæðum, því að Drottinn hefur hafnað og útskúfað þeirri kynslóð sem hann reiddist. Júdamenn hafa gert það sem illt er í augum mínum, segir Drottinn. Þeir hafa reist viðurstyggilegar guðamyndir sínar í húsinu, sem kennt er við nafn mitt, til þess að saurga það. Þeir hafa reist Tófet-fórnarhæðir í Hinnomssonardal til þess að brenna syni sína og dætur í eldi. Það hef ég hvorki boðið né heldur komið það í hug.
Sjá, þeir dagar munu koma, segir Drottinn, að ekki verður lengur talað um Tófet og Hinnomssonardal heldur um Drápsdal. Þá verða svo margir grafnir í Tófet að ekki verður neitt rúm eftir. Lík þessa fólks verða æti handa fuglum himins og dýrum merkurinnar og enginn mun fæla þau burt. Ég mun þagga niður fagnaðar- og gleðihróp, köll brúðguma og brúðar í borgum í Júda og á strætum í Jerúsalem, því að landið verður lagt í eyði.
Biblíulestur – 22. júní – Lúk 16.19–31
Jesús sagði þeim þessa dæmisögu: „Einu sinni var maður nokkur ríkur er klæddist purpura og dýru líni og lifði hvern dag í dýrlegum fagnaði. En fátækur maður, hlaðinn kaunum, lá [...]
Biblíulestur – 21. júní – Slm 102.24–29
Hann bugaði kraft minn á miðri ævi, fækkaði ævidögum mínum. Ég segi: „Guð minn, sviptu mér ekki burt á miðri ævi því að ár þín vara frá kyni til kyns.“ [...]
Biblíulestur – 20. júní – Jóh 19.1–16
Þá lét Pílatus taka Jesú og húðstrýkja hann. Hermennirnir fléttuðu kórónu úr þyrnum og settu á höfuð honum og lögðu yfir hann purpurakápu. Þeir gengu hver af öðrum fyrir hann [...]
Biblíulestur – 19. júní – Jóh 18.28–40
Menn æðsta prestsins fóru nú með Jesú frá Kaífasi til hallar landshöfðingjans. Það var snemma morguns. Þeir fóru ekki sjálfir inn í höllina svo að þeir saurguðust ekki heldur mættu [...]
Biblíulestur – 18. júní – Jóh 18.15–27
Símon Pétur fylgdi Jesú og annar lærisveinn. Sá lærisveinn var kunnugur æðsta prestinum og fór með Jesú inn í hallargarð æðsta prestsins. En Pétur stóð utan dyra. Hinn lærisveinninn, sem [...]
Biblíulestur – 17. júní – Matt 7.7–12
Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar, [...]