Biblíulestur 30. júlí – Jer 8.8–17
Hvernig getið þér sagt: „Vér erum vitrir,
lögmál Drottins er hjá oss“?
Rétt er það. En lygapenni skrifaranna
hefur gert það að lygi.
Hinir vitru hafa orðið sér til skammar,
þeir eru skelfingu lostnir og verða teknir til fanga.
Þeir hafa hafnað orði Drottins,
hvers virði er þeim þá eigin viska?
Þess vegna gef ég öðrum konur þeirra,
akra þeirra fæ ég nýjum eigendum.
Því að bæði háir sem lágir sækjast eftir gróða af okri,
spámenn jafnt sem prestar,
allir hafa þeir svik í frammi.
Þeir vilja lækna limlesta dóttur þjóðar minnar með hægu móti
með því að segja:
„Heill, heill,“ þar sem engin heill er.
Þeir ættu að skammast sín
því að þeir hafa framið viðurstyggilegt athæfi.
En þeir skammast sín ekki
því að þeir þekkja enga blygðun.
Þess vegna munu þeir falla með þeim sem falla.
Þegar ég dreg þá til ábyrgðar
verður þeim steypt, segir Drottinn.
Þegar ég ætlaði að taka til við uppskeru meðal þeirra,
segir Drottinn,
voru engin ber á vínviðnum,
engar fíkjur á fíkjutrénu
og laufið var fölnað.
Ég hef því framselt þá eyðendum sem tortíma þeim.
Hvers vegna sitjum vér með hendur í skauti?
Safnist saman.
Höldum inn í víggirtu borgirnar,
þar munum vér farast.
Drottinn, Guð vor, lætur oss farast,
hann lætur oss drekka eitrað vatn
því að vér höfum syndgað gegn Drottni.
Vér væntum friðar en ekkert gott kom,
lækningartíma en skelfing dundi yfir.
Frá Dan heyrist frýsið í fákum hans,
allt landið nötrar af hneggi stríðalinna hesta hans.
Þeir koma og gleypa landið og allt sem í því er,
borgirnar og íbúa þeirra.
Ég sendi yður höggorma
sem engar særingar hrína á,
þeir munu bíta yður, segir Drottinn,
og engin björg er til.
Biblíulestur – 4. júlí – 5Mós 1.34–46
Þegar Drottinn heyrði það sem þið sögðuð reiddist hann og sór: „Enginn af þessari illu kynslóð skal fá að sjá landið góða, sem ég sór að gefa forfeðrum ykkar, nema [...]
Biblíulestur – 3. júlí – 5Mós 1.19–33
Því næst héldum við af stað frá Hóreb og fórum gegnum alla þessa miklu og skelfilegu eyðimörk sem þið hafið sjálf séð. Við fórum áleiðis til fjalllendis Amoríta eins og [...]
Biblíulestur – 2. júlí – 5Mós 1.1–18
Hér á eftir fer ræðan sem Móse flutti öllum Ísraelsmönnum í eyðimörkinni austan við Jórdan. Hann flutti hana í Araba, austan við Súf, milli Paran og Tófel, Laban, Hatserót og [...]
Biblíulestur – 1. júlí – Jóh 21.15–25
Þegar þeir höfðu matast sagði Jesús við Símon Pétur: „Símon Jóhannesson, elskar þú mig meira en þessir?“ Hann svarar: „Já, Drottinn, þú veist að ég elska þig.“ Jesús segir við [...]
Biblíulestur – 30. júní – Jóh 21.1–14
Eftir þetta birtist Jesús lærisveinunum aftur og þá við Tíberíasvatn. Hann birtist þannig: Þeir voru saman: Símon Pétur, Tómas, kallaður tvíburi, Natanael frá Kana í Galíleu, Sebedeussynirnir og tveir enn [...]
Biblíulestur – 29. júní – Lúk 14.16–24
Jesús sagði við hann: „Maður nokkur gerði mikla kvöldmáltíð og bauð mörgum. Er stundin kom að veislan skyldi vera sendi hann þjón sinn að segja þeim er boðnir voru: Komið, [...]