Biblíulestur 31. júlí – Jer 8.18–9.8
Ég er yfirkominn af sorg,
hjarta mitt er þjakað.
Hlustið. Kvein dótturinnar, þjóðar minnar,
heyrist um þvert og endilangt landið.
Er Drottinn ekki á Síon, er enginn konungur þar?
Hvers vegna vöktuð þér reiði mína
með skurðgoðum yðar, með framandi guðum?
Kornuppskeran er liðin, ávaxtauppskeran á enda
en oss hefur ekki borist hjálp.
Þar sem dóttirin, þjóð mín, er limlest
er ég niðurbrotinn,
ég syrgi, skelfingu lostinn.
Eru engin smyrsl til í Gíleað?
Er þar enginn læknir?
Hvers vegna hafa sár dótturinnar, þjóðar minnar, ekki gróið?
Ég vildi að höfuð mitt væri vatn,
augu mín táralind,
þá mundi ég gráta nótt og dag
yfir hinum föllnu af dótturinni, þjóð minni.
Hefði ég gistihús fyrir ferðalanga í eyðimörkinni
gæti ég yfirgefið þjóð mína og farið frá þeim
því að þeir eru allir hórkarlar, hópur svikara.
Þeir spenna tunguna eins og boga,
þeir halda völdum í landinu
með lygi, ekki með sannleika.
Þeir ganga frá einu illvirki til annars
en mig þekkja þeir ekki, segir Drottinn.
Varið yður hver á öðrum
og treystið ekki bróður yðar.
Sérhver bróðir er fláráður
og sérhver vinur er rógberi.
Hver og einn blekkir náunga sinn,
enginn segir sannleikann.
Þeir hafa vanið tungu sína á lygar.
Þeir gera illt og geta ekki hætt því:
Kúgun leiðir til kúgunar, svik til svika.
Þeir vilja ekki þekkja mig, segir Drottinn.
Þess vegna segir Drottinn hersveitanna:
Ég mun setja þá í deiglu og reyna þá.
Hvað annað get ég gert gegn illsku þeirra?
Tunga þeirra er banvæn ör,
munnur þeirra fer með blekkingar.
Þeir heilsa kunningjum sínum vinsamlega
en í hjarta sínu sitja þeir á svikráðum við þá.
Ætti ég ekki að refsa þeim fyrir það, segir Drottinn,
ætti ég ekki að hefna mín á annarri eins þjóð?
Biblíulestur – 10. júlí – 5Mós 3.14–29
Jaír, sonur Manasse, tók Argóbhéraðið að landi Gesúríta og Maakatíta og gaf því nafn sitt, nefndi Basan Havót Jaír eins og það heitir enn í dag. Makír fékk ég Gíleað [...]
Biblíulestur – 9. júlí – 5Mós 3.1–13
Þegar við snerum á leið upp til Basan kom Óg, konungur í Basan, ásamt öllum her sínum til að berjast við okkur hjá Edreí. Þá sagði Drottinn við mig: „Óttastu [...]
Biblíulestur – 8. júlí – 5Mós 2.16–37
Þegar allir vopnfærir menn þjóðarinnar voru dánir sagði Drottinn við mig: „Í dag muntu fara yfir Móabsland um Ar. Þegar þú nálgast Ammóníta skaltu hvorki sýna þeim fjandskap né ráðast [...]
Biblíulestur – 7. júlí – 5Mós 2.1–15
Eftir þá dvöl héldum við út í eyðimörkina og áleiðis til Sefhafsins eins og Drottinn hafði boðið mér og marga daga vorum við á leiðinni umhverfis Seírfjalllendið. Þá sagði Drottinn [...]
Biblíulestur – 6. júlí – Lúk 15.1–10
Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann en farísear og fræðimenn ömuðust við því og sögðu: „Þessi maður tekur að sér syndara og samneytir þeim.“ En [...]
Biblíulestur – 5. júlí – Slm 103.1–10
Davíðssálmur. Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn; lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans. Hann fyrirgefur allar misgjörðir [...]