Biblíulestur 5. ágúst – Jer 10.10–25
En Drottinn er hinn sanni Guð,
hann er lifandi Guð og eilífur konungur.
Jörðin skelfur fyrir heift hans
og þjóðirnar standast ekki reiði hans.
Um þá skuluð þér segja:
Guðum, sem hvorki hafa gert himin né jörð,
verður eytt af jörðinni og undan himninum.
Sá sem skapaði jörðina með krafti sínum,
lagði grunn heimsins með speki sinni
og þandi út himininn með þekkingu sinni.
Þegar hann lætur rödd sína þruma
heyrist gnýr vatna í himninum,
hann sendir ský upp frá endimörkum jarðar
og lætur eldingar leiftra í regninu,
hann hleypir vindinum út úr geymslum hans.
Sérhver maður verður skilningsvana glópur,
hver gullsmiður mun skammast sín fyrir guðamyndirnar
því að það sem hann steypir er blekking,
þær hafa ekki lífsanda.
Þær eru aðeins vindgustur,
hlægilegar og einskis nýtar.
Þegar tími uppgjörsins kemur farast þær.
Hann sem er hlutskipti Jakobs
er ekki líkur þeim
því að hann hefur skapað allt
og Ísrael er ættkvíslin sem er eign hans,
Drottinn hersveitanna er nafn hans.
Taktu föggur þínar upp af jörðinni,
þú sem býrð í umsetinni borg.
Því að Drottinn segir:
Í þetta skipti varpa ég íbúum landsins í burtu.
Ég mun þrengja svo mjög að þeim
að þeir finni mig.
Vei mér, þjakaður er ég,
sár mitt er ólæknandi.
Ég hugsaði: „Þetta er sjúkdómur,
ég skal bera hann.“
Tjald mitt hefur verið jafnað við jörðu,
öll stögin eru slitin,
börn mín hafa yfirgefið mig,
þau eru hér ekki lengur.
Enginn reisir tjald mitt aftur
og þenur út tjalddúkinn.
Þar sem hirðarnir voru heimskingjar
og leituðu ekki til Drottins
lánaðist þeim ekkert
og öll hjörð þeirra tvístraðist.
Hlustið. Fréttir voru að berast.
Mikill gnýr berst frá landinu í norðri,
borgirnar í Júda verða jafnaðar við jörð,
þær verða sjakalabæli.
Ég veit, Drottinn,
að enginn maður ræður för sinni,
enginn stýrir skrefum sínum á göngunni.
Refsa mér, Drottinn, en þó í hófi,
ekki í reiði, svo að þú upprætir mig ekki.
Úthelltu reiði þinni yfir þjóðirnar
sem þekkja þig ekki
og yfir þær kynkvíslir
sem ekki ákalla nafn þitt
því að þær hafa gleypt Jakob og eytt honum
og lagt beitilönd hans í auðn.
Biblíulestur – 9. ágúst – Slm 105.1–15
Þakkið Drottni, ákallið nafn hans, gerið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna. Syngið honum lof, leikið fyrir hann, segið frá öllum máttarverkum hans. Hrósið yður af hans heilaga nafni, hjarta þeirra [...]
Biblíulestur – 8. ágúst – 1Jóh 5.13–21
Þetta hef ég skrifað ykkur sem trúið á nafn Guðs sonar til þess að þið vitið að þið eigið eilíft líf. Og þetta er traustið sem við berum til hans: [...]
Biblíulestur – 7. ágúst – 1Jóh 5.1–12
Hver sem trúir að Jesús sé Kristur er barn Guðs og hver sem elskar föðurinn elskar einnig barn hans. Við vitum að við elskum börn Guðs af því að við [...]
Biblíulestur – 6. ágúst – 1Jóh 4.11–21
Þið elskuðu, fyrst Guð hefur elskað okkur svo mikið þá ber okkur einnig að elska hvert annað. Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Ef við elskum hvert annað þá er [...]
Biblíulestur – 5. ágúst – 1Jóh 4.1–10
Þið elskuðu, trúið ekki öllum sem segjast hafa andann, reynið þá heldur og komist að því hvort andinn sé frá Guði. Því margir falsspámenn eru farnir út í heiminn. Af [...]
Biblíulestur – 4. ágúst – 1Jóh 3.7–24
Börnin mín, látið engan villa ykkur. Sá sem iðkar réttlætið er réttlátur eins og Kristur er réttlátur. Hver sem syndgar heyrir djöflinum til því að djöfullinn hefur syndgað frá upphafi. [...]