Biblíulestur 4. ágúst – Jer 9.21–10.9
Segðu: Svo segir Drottinn:
Lík manna liggja á jörðinni eins og mykja á velli,
eins og kornknippi aftan við sláttumann
og enginn tínir þau saman.
Svo segir Drottinn:
Hinn vitri hrósi sér ekki af visku sinni,
hinn sterki hrósi sér ekki af afli sínu
og hinn ríki hrósi sér ekki af auði sínum.
Nei, sá sem vill hrósa sér hrósi sér af því
að hann sé hygginn og þekki mig.
Því að ég, Drottinn, iðka miskunnsemi,
rétt og réttlæti á jörðinni,
á því hef ég velþóknun, segir Drottinn.
Þeir dagar koma, segir Drottinn, að ég mun draga alla umskorna til ábyrgðar: Egypta, Júdamenn, Edómíta, Ammóníta, Móabíta og alla sem hafa skorið hárlokkana frá gagnaugunum og búa í eyðimörkinni. Allar þessar þjóðir eru óumskornar en allir af ætt Ísraels eru óumskornir á hjarta.
Hlustið á orðin sem Drottinn talar til yðar, Ísraels ætt.
Svo segir Drottinn:
Því að það sem aðrar þjóðir óttast er aðeins vindgustur,
aðeins trjástofn höggvinn í skógi,
handaverk hagleiksmanna gert með eggjárni,
skreytt silfri og gulli,
fest með nöglum og hamri
svo það velti ekki um koll.
Guðamyndirnar eru eins og fuglahræður í melónugarði.
Þær geta ekki talað,
þær þarf að bera því að þær geta ekki gengið.
Óttist þær ekki. Þær geta ekki gert neitt illt
og þær geta ekki heldur gert neitt gott.
Enginn er sem þú, Drottinn.
Voldugur ert þú
og mikill er máttur nafns þíns.
Hver skyldi ekki óttast þig,
konungur þjóðanna?
Þú ert þess maklegur
því að meðal allra spekinga þjóðanna
og í öllum ríkjum þeirra er enginn þinn líki.
Allir sem einn eru þeir heimskir og fávísir,
áminningar þeirra eru merkingarlausar.
Þeir eru úr hömruðu silfri, fluttu frá Tarsis,
og gulli frá Úfas,
verk handverksmanna og gullsmiða,
klæði þeirra úr bláum og rauðum purpura,
allir eru þeir handaverk völunda.
Biblíulestur – 3. ágúst – Mrk 8.1–9
Um þessar mundir bar enn svo við að mikill mannfjöldi var saman kominn og hafði ekkert til matar. Jesús kallar þá til sín lærisveinana og segir við þá: „Ég kenni [...]
Biblíulestur – 2. ágúst – Slm 104.19–35
Þú gerðir tunglið, sem ákvarðar tíðirnar, og sólina sem veit hvenær hún á að ganga til viðar. Þú sendir myrkrið, þá verður nótt og öll skógardýrin fara á stjá. Ljónin [...]
Biblíulestur – 1. ágúst – 1Jóh 2.22–3.6
Hver er lygari ef ekki sá sem neitar að Jesús sé Kristur? Sá er andkristurinn sem afneitar föðurnum og syninum. Hver sem afneitar syninum hefur ekki heldur fundið föðurinn. Sá [...]
Biblíulestur – 31. júlí – 1Jóh 2.7–21
Þið elskuðu, það er ekki nýtt boðorð sem ég rita ykkur, heldur gamalt boðorð sem þið hafið haft frá upphafi. Hið gamla boðorð er orðið sem þið heyrðuð. Eigi að [...]
Biblíulestur – 30. júlí – 1Jóh 1.1–2.6
Efni vort er það sem var frá upphafi, það sem við höfum heyrt, það sem við höfum séð með augunum, það sem við horfðum á og hendurnar þreifuðu á, það [...]
Biblíulestur – 29. júlí – 5Mós 9.13–29
Enn fremur sagði Drottinn við mig: „Ég sé nú að þetta er harðsvírað fólk. Farðu frá mér því að ég ætla að eyða því og afmá nafn þess undir himninum. [...]