Biblíulestur 6. ágúst – Mrk 13.1–23
Þegar Jesús gekk út úr helgidóminum segir einn lærisveina hans við hann: „Meistari, sjáðu, hvílíkir steinar, hvílíkar byggingar!“
Jesús svaraði honum: „Sérðu þessar miklu byggingar? Hér verður ekki steinn yfir steini, allt lagt í rúst.“
Þá er Jesús sat á Olíufjallinu gegnt helgidóminum spurðu hann einslega þeir Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés: „Seg þú okkur, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess að allt þetta sé að koma fram?“
En Jesús tók að segja þeim: „Varist að láta nokkurn leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: Það er ég! og marga munu þeir leiða í villu. En þegar þér spyrjið hernað og ófriðartíðindi þá skelfist ekki. Þetta á að verða en endirinn er ekki þar með kominn. Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verða landskjálftar á ýmsum stöðum og hungur. Þetta er upphaf fæðingarhríðanna.
Gætið að sjálfum yður. Menn munu draga yður fyrir dómstóla, í samkundum verðið þér húðstrýkt og þér munuð leidd fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna til þess að bera vitni um mig. En fyrst á að prédika öllum þjóðum fagnaðarerindið. Þegar menn taka yður og draga fyrir rétt skuluð þér ekki hafa áhyggjur af því hvað þér eigið að segja heldur talið það sem yður verður gefið á þeirri stundu. Það eruð ekki þér sem talið heldur talar heilagur andi í yður. Þá mun bróðir selja bróður í dauða og faðir barn sitt. Börn munu rísa gegn foreldrum og valda þeim dauða. Allir munu hata yður af því að þér trúið á mig. En sá sem staðfastur er allt til enda verður hólpinn.
En þegar þér sjáið viðurstyggð eyðingarinnar standa þar er síst skyldi – lesandinn athugi það – þá flýi þau, sem í Júdeu eru, til fjalla. Sá sem er uppi á þaki fari ekki ofan og inn í húsið að sækja neitt. Og sá sem er á akri skal ekki hverfa aftur að taka yfirhöfn sína. Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum. Biðjið að það verði ekki um vetur. Á þeim dögum verður sú þrenging sem engin hefur þvílík verið frá upphafi sköpunar allt til þessa og mun aldrei verða. Ef Drottinn hefði ekki stytt þessa daga kæmist enginn maður af. En hann hefur stytt þá vegna þeirra sem hann hefur útvalið.
Og ef einhver segir þá við yður: Hér er Kristur, eða: Þar, þá trúið því ekki. Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn og þeir munu gera tákn svo að þeir gætu leitt hin útvöldu afvega ef það væri hægt. Gætið yðar. Ég hef sagt yður allt fyrir.
Biblíulestur – 15. ágúst – 5Mós 11.1–15
Þú skalt elska Drottin, Guð þinn, og ætíð halda fyrirmæli hans, lög, ákvæði og skipanir. Í dag skuluð þið játa að það voru ekki börn ykkar sem sáu og hlutu [...]
Biblíulestur – 14. ágúst – 5Mós 10.12–22
Og nú, Ísrael, hvers krefst Drottinn, Guð þinn, annars af þér en að þú óttist Drottin, Guð þinn, gangir á öllum vegum hans og elskir hann, að þú þjónir Drottni, [...]
Biblíulestur – 13. ágúst – 5Mós 10.1–11
Þá sagði Drottinn við mig: „Höggðu til tvær steintöflur eins og þær fyrri og komdu síðan til mín upp á fjallið. Þú skalt einnig smíða örk úr tré. Ég ætla [...]
Biblíulestur – 12. ágúst – 3Jóh 1–15
Öldungurinn heilsar elskuðum Gajusi sem ég ann í sannleika. Ég bið þess, minn elskaði, að þér vegni vel í öllu, þú sért heill heilsu og þér líði vel í sál [...]
Biblíulestur – 11. ágúst – 2Jóh 1–13
Öldungurinn heilsar hinni útvöldu frú og börnum hennar sem ég elska sannarlega. Og ekki ég einn heldur einnig allir sem þekkja sannleikann. Við gerum það sakir sannleikans sem í okkur [...]
Biblíulestur – 10. ágúst – Matt 7.15–23
Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af [...]