Biblíulestur 7. ágúst – Mrk 13.24–37
En á þeim dögum, eftir þrenging þessa,
mun sólin sortna
og tunglið hætta að skína.
Stjörnurnar munu hrapa af himni
og festingin riðlast.
Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýjum með miklum mætti og dýrð. Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta.
Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér að sumar er í nánd. Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að endirinn er í nánd, fyrir dyrum. Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok uns allt þetta er komið fram. Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.
En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né sonurinn, enginn nema faðirinn. Gætið yðar, vakið! Þér vitið ekki nær tíminn er kominn. Svo er þetta sem maður fari úr landi, skilji við hús sitt og feli þjónum sínum umráðin, hverjum sitt verk. Dyraverðinum býður hann að vaka. Vakið því, þér vitið ekki nær húsbóndinn kemur, að kveldi, á miðnætti, í óttu eða dögun. Látið hann ekki finna yður sofandi þegar hann kemur allt í einu. Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!“
Biblíulestur – 21. ágúst – 5Mós 12.29–13.6
Þegar Drottinn, Guð þinn, hefur rutt þjóðunum úr vegi í landinu, sem þú ferð inn í til að vinna, og þú ert sestur að, gæt þín þá. Ánetjast ekki háttum [...]
Biblíulestur – 20. ágúst – 5Mós 12.17–28
Þú skalt ekki neyta tíundar af korni þínu, víni eða olíu í borgum þínum né heldur frumburða nautgripa þinna og sauðfjár og ekki neinna þeirra gjafa, sem þú hefur heitið [...]
Biblíulestur – 19. ágúst – 5Mós 12.1–16
Þetta eru þau lög og ákvæði sem þið skuluð fylgja af kostgæfni svo lengi sem þið lifið í landinu sem Drottinn, Guð forfeðra þinna, hefur fengið þér. Þið skuluð fylgja [...]
Biblíulestur – 18. ágúst – 5Mós 11.16–32
En gætið þess að láta ekki ginna ykkur til að víkja af leið og þjóna öðrum guðum og sýna þeim lotningu. Þá mun reiði Drottins blossa upp gegn ykkur og [...]
Biblíulestur – 17. ágúst – Lúk 16.1–9
Enn sagði Jesús við lærisveina sína: „Maður nokkur ríkur hafði ráðsmann og var honum sagt að ráðsmaðurinn sóaði eigum hans. Ríki maðurinn lét kalla ráðsmanninn fyrir sig og sagði við [...]
Biblíulestur – 16. ágúst – Slm 105.16–25
Þegar hann kallaði hungur yfir landið, svipti þá öllum birgðum brauðs, sendi hann mann á undan þeim. Jósef var seldur sem þræll, þeir særðu fætur hans með fjötrum, settu háls [...]