Biblíulestur – Þrenningarhátíð 15. júní – Jóh 3.1–15
Maður hét Nikódemus, af flokki farísea, og átti sæti í öldungaráði Gyðinga. Hann kom til Jesú um nótt og sagði við hann: „Rabbí, við vitum að þú ert lærifaðir kominn frá Guði. Enginn getur gert þessi tákn sem þú gerir nema Guð sé með honum.“
Jesús svaraði honum: „Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur séð Guðs ríki nema hann fæðist að nýju.“
Nikódemus segir við hann: „Hvernig getur maður fæðst þegar hann er orðinn gamall? Skyldi hann geta komist aftur í líf móður sinnar og fæðst?“
Jesús svaraði: „Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur komist inn í Guðs ríki nema hann fæðist af vatni og anda. Það sem af manni fæðist er manns barn en það sem fæðist af anda Guðs er Guðs barn. Undrast eigi að ég segi við þig: Ykkur ber að fæðast að nýju. Vindurinn blæs þar sem hann vill og þú heyrir þyt hans. Samt veistu ekki hvaðan hann kemur né hvert hann fer. Svo er um þann sem af andanum er fæddur.“
Þá spurði Nikódemus: „Hvernig má þetta verða?“
Jesús svaraði honum: „Þú ert lærifaðir í Ísrael og veist þetta ekki? Sannlega, sannlega segi ég þér: Vér tölum um það sem vér þekkjum og vitnum um það sem vér höfum séð en þér takið ekki á móti vitnisburði vorum. Ef þér trúið eigi þegar ég ræði við yður jarðnesk efni, hvernig skylduð þér þá trúa er ég ræði við yður um hin himnesku? Enginn hefur stigið upp til himins nema sá er steig niður frá himni, Mannssonurinn.
Og eins og Móse hóf upp höggorminn í eyðimörkinni, þannig á Mannssonurinn að verða upp hafinn svo að hann veiti hverjum sem trúir á hann eilíft líf.
Biblíulestur 6. október – Slm 51.1-8
1 Til söngstjórans. Sálmur Davíðs, 2 þegar Natan spámaður kom til hans eftir að Davíð hafði gengið inn til Batsebu. 3Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar, afmá brot mín [...]
Biblíulestur 5. október – Dóm 2.16-3.6
2. kafli 16 En Drottinn vakti upp dómara og þeir frelsuðu þá úr höndum þeirra sem rændu þá. 17 En þeir hlýddu ekki heldur dómurum sínum en tóku fram hjá [...]
Biblíulestur 4. október – Dóm 2.1-15
Engill Drottins boðar hegningu 1 Engill Drottins kom frá Gilgal til Bókím og mælti: „Ég leiddi ykkur út af Egyptalandi og færði ykkur í það land sem ég sór feðrum [...]
Biblíulestur 3. október – Dóm 1.22-36
22 Ættmenn Jósefs fóru líka upp til Betel og Drottinn var með þeim. 23 Og ættmenn Jósefs létu njósna í Betel en borgin hét áður Lús. 24 Þá sáu njósnararnir [...]
Biblíulestur 2. október – Dóm 1.1-21
Af landnámi Kanaans 1 Eftir andlát Jósúa spurðu Ísraelsmenn Drottin: „Hver okkar skal fara fyrstur gegn Kanverjum til þess að berjast við þá?“ 2 Drottinn sagði: „Júda skal fara gegn [...]
Biblíulestur 1. október – Esk 39.21-29
Endurreisn Ísraels 21 Ég birti dýrð mína á meðal þjóðanna. Allar þjóðir skulu sjá hvernig ég fullnægi refsidómi mínum og sjá hönd mína sem ég legg á þá. 22 Frá [...]