Biblíulestur 27. ágúst – Jer 14.10–22
Svo segir Drottinn um þessa þjóð: Þeir hafa gaman af að eigra um stefnulaust, þeir hvíla ekki fæturna. En Drottinn gleðst ekki yfir þeim, nú minnist hann sektar þeirra og dregur þá til ábyrgðar fyrir synd þeirra.
Drottinn sagði enn fremur við mig: Ekki biðja um að þessu fólki farnist vel. Þegar þeir fasta hlusta ég ekki á kvein þeirra. Þegar þeir færa brennifórn eða kornfórn gleðst ég ekki yfir þeim. Ég mun gereyða þeim með sverði, hungri og drepsótt.
Þá sagði ég: Æ, herra Drottinn! Spámennirnir segja við þá: Þér munuð ekki sjá sverð og ekkert hungur steðjar að því að ég mun veita yður varanlega heill á þessum stað.
En Drottinn svaraði mér: Spámennirnir boða lygi í mínu nafni. Ég hef hvorki sent þá, gefið þeim fyrirmæli né talað til þeirra. Upplognar sýnir, fánýtar spásagnir og eigin uppspuna boða þeir yður. Þess vegna mælir Drottinn svo gegn spámönnunum sem flytja boð í mínu nafni án þess að ég hafi sent þá og segja að hvorki sverð né hungur muni ganga yfir þetta land: Þessir spámenn munu falla fyrir sverði og deyja úr hungri. En mönnunum, sem þeir fluttu þessi boð, verður fleygt á göturnar í Jerúsalem. Þeir munu falla úr hungri og fyrir sverði. Enginn mun grafa þá, hvorki þá sjálfa né konur þeirra, syni þeirra né dætur. Þannig mun ég úthella yfir þá þeirri ógæfu sem þeir verðskulda.
Tala þessi orð til þeirra:
Augu mín flóa í tárum
dag og nótt, án afláts,
því að mærin, dóttir þjóðar minnar,
er beinbrotin og limlest,
særð banvænu sári.
Gangi ég út á víðan vang
sjást þar menn sem reknir hafa verið í gegn með sverði.
Gangi ég inn í borgina
sjást þar menn máttvana af hungri.
Jafnvel spámaður og prestur
hrekjast til lands sem þeir þekkja ekki.
Hefur þú hafnað Júda algjörlega?
Hefur þú fengið andstyggð á Síon?
Hvers vegna hefur þú sært oss sári
sem ekki verður grætt?
Vér væntum farsældar en ekkert gott kom,
tíma endurreisnar en lítið á: aðeins skelfing!
Drottinn, vér játum afbrot vor,
sekt feðra vorra,
vér höfum syndgað gegn þér.
Afneitaðu ekki, smánaðu ekki hásæti dýrðar þinnar
vegna nafns þíns.
Minnstu sáttmálans við oss,
rjúfðu hann ekki.
Geta fánýt goð framandi þjóða gefið regn?
Eða sendir himinninn regnskúrir að eigin frumkvæði?
Ert það ekki þú, Drottinn, Guð vor?
Vér vonum á þig
því að þú hefur gert þetta allt.
Biblíulestur – Aðfangadagur 24. desember – Lúk 2.1–14
En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá er Kýreníus var landstjóri [...]
Biblíulestur – Þorláksmessa 23. desember – Matt 24.42–47
Vakið því, þér vitið eigi hvaða dag Drottinn yðar kemur. Það skiljið þér að húsráðandi vekti og léti ekki brjótast inn í hús sitt ef hann vissi á hvaða stundu [...]
Biblíulestur – 22. desember – Ef 5.21–6.9
Sýnið Kristi lotningu og hvert öðru auðsveipni: konurnar eiginmönnum sínum eins og Drottni. Því að maðurinn er höfuð konunnar eins og Kristur er höfuð og frelsari kirkjunnar, líkama síns. En [...]
Biblíulestur – Fjórði sunnudagur í aðventu 21. desember – Jóh 3.22–30
Eftir þetta fóru Jesús og lærisveinar hans út í Júdeuhérað. Þar dvaldist hann með þeim og skírði. Jóhannes var líka að skíra í Aínon nálægt Salím en þar var mikið [...]
Biblíulestur – 20. desember – Slm 110.1–7
Davíðssálmur. Svo segir Drottinn við herra minn: „Set þig mér til hægri handar, þá mun ég leggja óvini þína sem skör fóta þinna.“ Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá [...]
Biblíulestur – 19. desember – Ef 5.1–20
Verðið því eftirbreytendur Guðs svo sem elskuð börn hans. Lifið í kærleika eins og Kristur elskaði okkur og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir okkur svo sem fórnargjöf, Guði til [...]