Biblíulestur 26. ágúst – Jer 13.22–14.9
Ef þú hugsar með sjálfri þér:
Hvers vegna hefur allt þetta dunið á mér?
skaltu vita að vegna mikillar syndar þinnar
hefur pilsfaldi þínum verið lyft
og þér nauðgað.
Getur Núbíumaður breytt hörundslit sínum
eða pardusdýr blettum sínum?
Þá getið þér líka gert gott
sem hafið vanist að gera illt.
Ég mun því dreifa yður eins og stráum
sem fjúka undan eyðimerkurvindinum.
Það er hlutskipti þitt,
launin sem ég hef skammtað þér, segir Drottinn,
af því að þú gleymdir mér
en treystir lygum.
Nú lyfti ég einnig pilsfaldi þínum yfir höfuð þér
svo að blygðun þín verði sýnileg.
hjúskaparbrot þín, lostavein
og blygðunarlaus hórdómur.
Ég hef séð andstyggilega hegðun þína
á hæðunum og á sléttunum.
Vei þér, Jerúsalem, ef þú hreinsar þig ekki.
Hve lengi enn mun þetta vara?
Orð Drottins, sem kom til Jeremía, um þurrkinn mikla.
Júda skrælnar af þurrki,
borgir hennar hrörna,
íbúarnir syrgja, beygðir til jarðar,
harmakvein stígur upp frá Jerúsalem.
Höfðingjarnir senda þjóna sína eftir vatni.
Þegar þeir koma að brunnunum
finna þeir ekkert vatn.
Þeir snúa heim með tómar krukkur,
vonsviknir og skömmustulegir og hylja höfuð sín.
Jarðvegurinn er sprunginn
því að ekkert hefur rignt í landinu.
Bændurnir eru því vonsviknir, þeir hylja höfuð sitt.
Jafnvel hindin í haganum
yfirgefur nýborinn kálf
því að hvergi sést stingandi strá.
Villiasnarnir standa á nöktum hæðum,
þeir grípa andann á lofti eins og sjakalar,
augu þeirra daprast
því að hvergi er beit að hafa.
Þó að syndir vorar vitni gegn oss,
láttu samt til þín taka vegna nafns þíns, Drottinn.
Svik vor eru margvísleg,
vér höfum syndgað gegn þér.
Þú, von Ísraels,
frelsari hans á neyðartímum.
Hvers vegna ertu eins og aðkomumaður í landinu,
eins og ferðamaður sem tjaldar til einnar nætur?
Hvers vegna ertu eins og ruglaður maður,
eins og hermaður sem ekki getur sigrað?
Þú ert þó sjálfur á meðal vor,
Drottinn, vér erum kenndir við þig,
yfirgef oss ekki.
Biblíulestur – 18. desember – Ef 4.17–32
Þetta segi ég þá og vitna í nafni Drottins: Þið megið ekki framar hegða ykkur eins og heiðingjarnir hegða sér. Hugsun þeirra er allslaus, skilningur þeirra blindaður og þeir eru [...]
Biblíulestur – 17. desember – Ef 4.7–16
Sérhvert okkar þáði af Kristi sína náðargjöf. Því segir ritningin: „Hann steig upp til hæða, hertók fanga og gaf mönnunum gjafir.“ En „steig upp“, hvað merkir það annað en að [...]
Biblíulestur – 16. desember – Ef 3.14–4.6
Þess vegna beygi ég kné mín fyrir föðurnum, sem hvert faðerni fær nafn af á himni og jörðu, að hann gefi ykkur af ríkdómi dýrðar sinnar að styrkjast fyrir anda [...]
Biblíulestur – 15. desember – Ef 3.1–13
Þess vegna er það að ég, Páll, bandingi Krists Jesú vegna ykkar, heiðinna manna, beygi kné mín. Víst hafið þið heyrt um þá náð sem Guð hefur sýnt mér og [...]
Biblíulestur – Þriðji sunnudagur í aðventu 14. desember – Lúk 3.1–18
Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus, bróðir hans, í Ítúreu og Trakónítishéraði og Lýsanías í Abílene, í æðstapreststíð [...]
Biblíulestur – 13. desember – Slm 109.21—31
En þú, Drottinn, Guð minn, breyt vel við mig sakir nafns þíns, frelsa mig sakir gæsku þinnar og miskunnar því að ég er hrjáður og snauður, hjartað berst í brjósti [...]