Biblíulestur 28. ágúst – Jer 15.1–11
Drottinn sagði við mig: Þó að Móse og Samúel stæðu fyrir augliti mínu vildi ég ekki skipta mér af þessu fólki. Rektu þá frá augliti mínu, þeir eiga að fara burt. Ef þeir þá spyrja: Hvert eigum vér að fara? skaltu svara þeim:
Svo segir Drottinn:
Til dauða sá sem dauða er ætlaður,
til sverðs sá sem sverði er ætlaður,
til hungurs sá sem hungri er ætlaður,
til útlegðar sá sem útlegð er ætlaður.
Ég sendi ferns konar refsingu yfir þá, segir Drottinn: sverð til að drepa þá, hunda til að draga þá burtu, fugla himinsins og dýr merkurinnar til að éta þá upp og eyða þeim. Ég læt öll konungsríki jarðar hrylla við þeim vegna þess sem Manasse Hiskíason Júdakonungur gerði í Jerúsalem.
Hver vorkennir þér, Jerúsalem,
hver hefur samúð með þér?
Hver staldrar við
til að spyrja um líðan þína?
Þú hafnaðir mér, segir Drottinn,
þú snerir baki við mér,
þess vegna reiddi ég hönd mína gegn þér.
Ég er þreyttur á að sýna miskunn.
Ég sáldraði þeim með varpskóflu
í borgum landsins,
gerði þjóð mína barnlausa, eyddi henni
þar sem hún breytti ekki háttum sínum.
Ekkjur þessarar þjóðar urðu fleiri
en sandkorn á sjávarströnd,
um hádegisbil sendi ég eyðanda
gegn mæðrum unglinganna,
lét ógn og skelfingu steypast yfir þær óviðbúið.
Sjö barna móðir féll í öngvit,
líf hennar fjaraði út.
Sól hennar gekk til viðar um hábjartan dag,
hún var höfð að háði og spotti.
Þá sem eftir voru ofurseldi ég sverðinu
frammi fyrir fjandmönnum þeirra, segir Drottinn.
Vei mér, móðir, að þú fæddir mig,
mann sem á í málaferlum og deilum við alla landsmenn.
Ég hef engum lánað og enginn hefur lánað mér,
samt formæla mér allir.
Sannarlega hef ég þjónað þér, Drottinn, með gott í huga,
ég hef beðið fyrir fjandmanni mínum
þegar hann hefur þolað böl og neyð.
Biblíulestur – 30. desember – Kól 1.1–11
Páll, að vilja Guðs postuli Krists Jesú, og Tímóteus, bróðir vor, heilsa þeim í Kólossu sem eru trúuð og helguð systkin í Kristi. Náð sé með yður og friður frá [...]
Biblíulestur – 29. desember – Ef 6.10–24
Að lokum: Styrkist í Drottni og krafti máttar hans. Klæðist alvæpni Guðs til þess að þið getið staðist vélabrögð djöfulsins. Því að baráttan sem við eigum í er ekki við [...]
Biblíulestur – 28. desember – Lúk 2.22–33
En er hreinsunardagar þeirra voru úti eftir lögmáli Móse fóru þau með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni, en svo er ritað í lögmáli Drottins: „Allt karlkyns, [...]
Biblíulestur – 27. desember – Okv 27.1–14
Hælstu ekki um af morgundeginum því að þú veist ekki hvað dagurinn ber í skauti sínu. Láttu aðra hrósa þér, ekki þinn eigin munn, annarra varir, ekki þínar eigin. Steinar [...]
Biblíulestur – Annar í jólum 26. desember – Matt 1.18–25
Fæðing Jesú Krists varð á þennan hátt: María, móðir hans, var föstnuð Jósef. En áður en þau komu saman reyndist hún þunguð af heilögum anda. Jósef, festarmaður hennar, sem var [...]
Biblíulestur – Jóladagur 25. desember – Jóh 1.1–14
Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. Hann var í upphafi hjá Guði. Allt varð til fyrir hann, án hans varð ekki neitt sem [...]