Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 5. september – Slm 126

Þegar Drottinn sneri við hag Síonar
var sem oss dreymdi.
Þá fylltist munnur vor hlátri
og tungur vorar fögnuði.
Þá sögðu menn meðal þjóðanna:
„Mikla hluti hefur Drottinn gert við þá.“
Drottinn hefur gert mikla hluti við oss,
vér vorum glaðir.
Snú við hag vorum, Drottinn,
eins og þú fyllir þurra farvegi í Suðurlandi.
Þeir sem sá með tárum
munu uppskera með gleðisöng.
Grátandi fara menn
og bera sáðkorn til sáningar,
með gleðisöng koma þeir aftur
og bera kornbindin heim.

Biblíulestur 18. febrúar – Matt 9.14–17

Þá koma til Jesú lærisveinar Jóhannesar og segja: „Hví föstum við og farísear en þínir lærisveinar fasta ekki?“ Jesús svaraði þeim: „Hvort geta brúðkaupsgestir verið hryggir meðan brúðguminn er hjá [...]

Fara efst