Biblíulestur 6. september – Jóh 5.1–15
Þessu næst var ein af hátíðum Gyðinga og Jesús fór upp til Jerúsalem. Við Sauðahliðið í Jerúsalem er laug sem kallast á hebresku Betesda. Þar eru fimm súlnagöng. Í þeim lá fjöldi sjúkra manna, blindra, haltra og lamaðra [sem biðu hræringar vatnsins. En engill Drottins fór öðru hverju niður í laugina og hrærði vatnið. Sá sem fyrstur fór ofan í eftir hræring vatnsins varð heill hvaða sjúkdómur sem þjáði hann.] Þarna var maður nokkur sem hafði verið sjúkur í þrjátíu og átta ár. Jesús sá hann þar sem hann lá og vissi að hann hafði lengi verið sjúkur. Hann segir við manninn: „Viltu verða heill?“
Hinn sjúki svaraði honum: „Herra, ég hef engan til að láta mig í laugina þegar vatnið hrærist og meðan ég er á leiðinni fer annar ofan í á undan mér.“
Jesús segir við hann: „Statt upp, tak rekkju þína og gakk!“ Jafnskjótt varð maðurinn heill, tók rekkju sína og gekk.
En þessi dagur var hvíldardagur og menn sögðu við hinn læknaða: „Í dag er hvíldardagur. Þú mátt ekki bera rekkjuna.“
Hann svaraði þeim: „Sá sem læknaði mig sagði við mig: Tak rekkju þína og gakk!“
Þeir spurðu hann: „Hver er sá maður sem sagði þér: Tak hana og gakk?“
En læknaði maðurinn vissi ekki hver hann var því að Jesús hafði leynst brott enda var þröng á staðnum.
Nokkru síðar hitti Jesús hann í helgidóminum og sagði við hann: „Nú ert þú orðinn heill. Syndga ekki framar svo að eigi hendi þig annað verra.“
Maðurinn fór og sagði ráðamönnum Gyðinga að Jesús væri sá sem læknaði hann.
Biblíulestur 27. febrúar – Opb 18.11–20
Og kaupmenn jarðarinnar gráta og harma yfir henni því að enginn kaupir nú framar vörur þeirra, farma af gulli og silfri, gimsteinum og perlum, dýru líni og purpura, silki og [...]
Biblíulestur 26. febrúar – Opb 18.1–10
Eftir þetta sá ég annan engil stíga ofan af himni og hafði hann mikið vald og jörðin ljómaði af dýrð hans. Og hann hrópaði með sterkri röddu: „Fallin er, fallin [...]
Biblíulestur 25. febrúar – Opb 17.3–18
Og andinn kom yfir mig og engillinn leiddi mig út í eyðimörk. Þar sá ég konu sitja á skarlatsrauðu dýri, alsettu guðlöstunar nöfnum og hafði það sjö höfuð og tíu [...]
Biblíulestur 24. febrúar – Opb 16.12–17.2
Sjötti engillinn hellti úr sinni skál yfir fljótið mikla, Efrat. Og vatnið í því þornaði upp svo að vegur yrði búinn fyrir konungana sem koma úr austri. Þá sá ég [...]
Biblíulestur 23. febrúar – Opb 16.1–11
Þá heyrði ég mikla raust frá musterinu segja við englana sjö: „Hellið úr skálum Guðs reiði yfir jörðina.“ Fyrsti engillinn fór þá og hellti úr sinni skál yfir jörðina og [...]
Biblíulestur 22. febrúar – Lúk 22.31–34
Símon, Símon, Satan krafðist að fá að sælda yður eins og hveiti svo að hismið kæmi í ljós. En ég hef beðið fyrir þér að trú þín þrjóti ekki. Og [...]