Biblíulestur 4. september – Jer 18.1–17
Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni: Farðu nú niður í hús leirkerasmiðsins. Þar mun ég láta þig heyra orð mín.
Ég gekk því niður til húss leirkerasmiðsins einmitt þegar hann var að vinna við hjólið. Mistækist kerið, sem hann var að móta úr leirnum, bjó hann til nýtt ker eftir því sem honum sýndist best.
Þá kom orð Drottins til mín: Get ég ekki farið með yður, Ísraelsmenn, eins og þessi leirkerasmiður gerir? segir Drottinn. Þér eruð í hendi minni, Ísraelsmenn, eins og leirinn í hendi leirkerasmiðsins.
Stundum hóta ég einhverri þjóð eða konungsríki að uppræta það, brjóta það niður eða eyða því. En hverfi þessi þjóð, sem ég hef hótað, frá illri breytni sinni iðrast ég þeirrar ógæfu sem ég hafði ákveðið að senda yfir hana.
Stundum heiti ég einhverri þjóð eða konungsríki að endurreisa það eða gróðursetja en geri hún það sem illt er í augum mínum án þess að hlýða boðum mínum iðrast ég hins góða sem ég hafði heitið að gera henni.
Segðu nú við Júdamenn og Jerúsalembúa: Svo segir Drottinn: Ég bý yður ógæfu og brugga ráð gegn yður. Hver og einn hverfi nú frá sinni illu breytni og snúi til betri vegar og góðrar breytni. En þeir munu svara: Það er til einskis. Vér fylgjum vorum eigin hugmyndum og sérhver mun breyta eftir þverúð síns vonda hjarta.
Þess vegna segir Drottinn:
Spyrjið á meðal þjóðanna
hver hafi heyrt annað eins.
Mærin Ísrael hefur unnið ódæði.
Hverfur grjótið af sléttunni,
snjórinn af Líbanonstindum?
Þorna sírennandi lækir,
niðandi lindir?
Þjóð mín hefur gleymt mér,
hún fórnar reykelsi fánýtum goðum
sem hafa leitt hana í hrösun
á gömlu götunum
inn á óruddar slóðir.
Þeir gera land sitt að skelfilegum stað
sem sífellt er hæðst að,
hver sem fer þar um
fyllist hryllingi og hristir höfuðið.
Eins og austanvindur
mun ég tvístra þeim fyrir fjandmönnum þeirra,
ég mun snúa í þá bakinu
en ekki andlitinu
á glötunardegi þeirra.
Biblíulestur 15. febrúar – Mrk 8.31–38
Þá tók Jesús að kenna þeim: „Mannssonurinn á margt að líða. Öldungarnir, æðstu prestarnir og fræðimennirnir munu útskúfa honum. Menn munu lífláta hann en hann mun upp rísa eftir þrjá [...]
Biblíulestur 14. febrúar – Slm 115.12–18
Drottinn minnist vor, hann mun blessa, hann mun blessa Ísraels ætt, hann mun blessa Arons ætt, hann mun blessa þá er óttast Drottin, háa sem lága. Drottinn fjölgi yður, sjálfum [...]
Biblíulestur 13. febrúar – Opb 12.13–13.10
Þegar drekinn sá að honum var varpað niður á jörðina ofsótti hann konuna sem alið hafði sveinbarnið. Og konunni voru gefnir vængirnir tveir af erninum mikla til þess að hún [...]
Biblíulestur 12. febrúar – Opb 12.1–12
Og tákn mikið birtist á himni: Kona klædd sólinni og tunglið var undir fótum hennar og á höfði hennar var kóróna af tólf stjörnum. Hún var þunguð og hljóðaði í [...]
Biblíulestur 11. febrúar – Opb 11.11–19
Eftir dagana þrjá og hálfan fór lífsandi frá Guði í þá og þeir risu á fætur. Mikill ótti kom yfir alla sem sáu þá. Og þeir heyrðu rödd mikla af [...]
Biblíulestur 10. febrúar – Opb 11.1–10
Mér var fengin mælistika, lík staf, og sagt: „Rís upp, mæl musteri Guðs og altarið og tel þau sem tilbiðja þar. En forgarðinum fyrir utan musterið skalt þú sleppa og [...]