Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 16. ágúst – Slm 105.16–25

Þegar hann kallaði hungur yfir landið,
svipti þá öllum birgðum brauðs,
sendi hann mann á undan þeim.
Jósef var seldur sem þræll,
þeir særðu fætur hans með fjötrum,
settu háls hans í járn
þar til orð hans rættust
og orð Drottins sönnuðu mál hans.
Konungur sendi boð og lét leysa hann,
drottnari þjóðanna leysti fjötra hans,
gerði hann herra húss síns
og stjórnanda allra eigna sinna
svo að hann gæti leiðbeint hirðmönnum að vild
og kennt öldungum hans speki.
Ísrael kom til Egyptalands,
Jakob varð gestur í landi Kams.
Drottinn jók stórum frjósemi lýðs síns,
gerði hann fjölmennari en fjandmenn hans.
Hann sneri hjarta Egypta til haturs á lýð sínum,
til lævísi gegn þjónum sínum.

Biblíulestur 29. júní – Ef 6.10-24

Alvæpni Guðs 10 Að lokum: Styrkist í Drottni og krafti máttar hans. 11 Klæðist alvæpni Guðs til þess að þið getið staðist vélabrögð djöfulsins. 12 Því að baráttan sem við [...]

Biblíulestur 28. júní – Lúk 15.1-10

Týndur sauður 1 Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann 2 en farísear og fræðimenn ömuðust við því og sögðu: „Þessi maður tekur að sér syndara [...]

Biblíulestur 26. júní – Ef 5.21-6.9

5. kafli Skyldur hjóna 21 Sýnið Kristi lotningu og hvert öðru auðsveipni: 22 konurnar eiginmönnum sínum eins og Drottni. 23 Því að maðurinn er höfuð konunnar eins og Kristur er [...]

Biblíulestur 25. júní – Ef 5.1-20

Börn ljóssins 1 Verðið því eftirbreytendur Guðs svo sem elskuð börn hans. 2 Lifið í kærleika eins og Kristur elskaði okkur og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir okkur svo [...]

Fara efst