Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 12. september – Slm 127

Ef Drottinn byggir ekki húsið
erfiða smiðirnir til ónýtis.
Ef Drottinn verndar eigi borgina
vakir vörðurinn til ónýtis.
Það er yður til einskis
að rísa upp árla og ganga seint til hvílu
og eta brauð sem aflað er með striti:
Svo gefur Drottinn ástvinum sínum í svefni.
Synir eru gjöf frá Drottni,
ávöxtur móðurlífsins er umbun.
Eins og örvar í hendi kappans
eru synir getnir í æsku.
Sæll er sá maður er fyllt hefur örvamæli sinn með þeim.
Þeir verða eigi til skammar
er þeir flytja mál gegn óvinum sínum í borgarhliðinu.

Biblíulestur 4. apríl – Matt 27.62–66

Næsta dag, hvíldardaginn, gengu æðstu prestarnir og farísearnir saman fyrir Pílatus og sögðu: „Herra, við minnumst þess að svikari þessi sagði í lifanda lífi: Eftir þrjá daga rís ég upp. [...]

Biblíulestur 3. apríl – Matt 27.33–55

Og er þeir komu til þess staðar er heitir Golgata, það þýðir hauskúpustaður, gáfu þeir Jesú vín að drekka, galli blandað. Hann bragðaði það en vildi ekki drekka. Þá krossfestu [...]

Biblíulestur 1. apríl – Est 3.12–4.3

Á þrettánda degi fyrsta mánaðarins var riturum konungs stefnt saman og tilskipun skráð sem í öllu var eftir fyrirmælum Hamans. Var hún síðan send öllum skattlandsstjórum konungs, svo og héraðshöfðingjum [...]

Biblíulestur 31. mars – Est 3.1–11

Eftir þennan atburð hækkaði Xerxes konungur Haman, son Hamdata og afkomanda Agags, í tign, hóf hann til mikilla metorða og setti hann yfir aðra höfðingja sína. Að skipan konungs skyldu [...]

Biblíulestur 30. mars – Est 2.8–23

Þegar tilskipanir og boð konungs urðu kunn var mörgum stúlkum safnað saman til hallar konungs í Súsa í umsjá Hegaí, þess sem gætti kvennabúrsins, og var Ester í hópi þeirra. [...]

Fara efst