Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 13. september – Lúk 10.38–42

Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkurt og kona að nafni Marta bauð honum heim. Hún átti systur er María hét og settist hún við fætur Drottins og hlýddi á orð hans. En Marta lagði allan hug á að veita sem mesta þjónustu. Og hún gekk til hans og mælti: „Drottinn, hirðir þú eigi um það að systir mín lætur mig eina um að þjóna gestum? Seg þú henni að hjálpa mér.“
En Drottinn svaraði henni: „Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið.“

Biblíulestur 10. apríl – Est 7.1–10

Er konungur og Haman komu til veislu hjá Ester drottningu spurði konungur hana hins sama og daginn áður þegar þau voru sest að drykkju: „Hvers óskarðu þér, Ester drottning? Það [...]

Biblíulestur 9. apríl – Est 6.1–14

Um nóttina varð konungur andvaka. Bauð hann þá að komið væri til sín með Annálabókina, bók þá sem geymdi minnisverð tíðindi, og var lesið úr henni fyrir hann. Þar fannst [...]

Biblíulestur 8. apríl – Est 5.1–14

Á þriðja degi klæddist Ester drottningarskrúða sínum og gekk inn í innri hallargarðinn andspænis konungshöllinni sjálfri. Þar sat konungur í hásæti sínu í hallarsalnum gegnt dyrum hallarinnar. Þegar konungur sá [...]

Biblíulestur 5. apríl – Matt 28.1–10

Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina. Þá varð landskjálfti mikill því engill Drottins sté niður [...]

Fara efst