Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 14. september – Jer 22.13–23

Vei þeim sem byggir hús sitt með ranglæti,
sali sína með rangindum
og lætur landa sinn þræla án launa
og greiðir honum ekkert.
Hann segir: „Ég byggi mér stórt hús
og rúmgóðar vistarverur.“
Hann setur í það glugga, þiljar það sedrusviði
og málar það rautt.
Ríkir þú sem konungur
af því að þú sýnir yfirburði í byggingum úr sedrusviði?
Át faðir þinn ekki líka og drakk?
En hann lagði stund á rétt og réttlæti
og honum vegnaði því vel.
Hann rak réttar hinna umkomulausu og snauðu
og allt gekk vel.
Er það ekki að játa mig?
spyr Drottinn.
En þú sérð hvorki né hugsar um annað
en eigin gróða,
að úthella saklausu blóði,
kúga og skattpína.
Þess vegna segir Drottinn um Jójakím
son Jósía Júdakonungs:
Enginn mun syrgja hann og segja:
„Æ, bróðir minn, vei, systir mín.“
Enginn mun syrgja hann og segja:
„Æ, herra, vei, konungur.“
Hann verður grafinn eins og asni,
hann verður dreginn burt og honum fleygt
fyrir utan borgarhlið Jerúsalem.
Gakktu upp á Líbanonsfjöll og hrópaðu,
hefðu upp raust þína í Basan,
hrópaðu frá Abarímfjöllum
því að allir elskhugar þínir eru sundurmolaðir.
Ég talaði til þín þegar þú varst enn áhyggjulaus
en þú sagðir: „Ég vil ekki hlusta.“
Þannig var breytni þín frá æsku:
Þú hlýddir ekki boðum mínum.
Stormurinn mun hirða alla hirða þína
og elskhugar þínir fara í útlegð.
Þá hlýtur þú smán og skömm
fyrir alla illsku þína.
Þú sem býrð á Líbanon,
gerir þér hreiður í sedrustrjám,
hve mjög muntu stynja
þegar þú færð hríðir
og þjáist eins og jóðsjúk kona.

Biblíulestur 16. apríl – Mrk 1.1–15

Upphaf fagnaðarerindisins um Jesú Krist, Guðs son. Svo er ritað hjá Jesaja spámanni: Ég sendi sendiboða minn á undan þér, hann á að greiða þér veg. Rödd hrópanda í eyðimörk: [...]

Biblíulestur 15. apríl – Est 9.20–10.3

Þessa atburði skrásetti Mordekaí. Hann sendi bréf til allra Gyðinga í öllum héruðum konungsríkis Xerxesar, jafnt nálægum sem fjarlægum, til að gera þeim skylt að halda árlega helgan fjórtánda og [...]

Biblíulestur 14. apríl – Est 8.15–9.19

Mordekaí gekk út frá konungi í konunglegum skrúða, fjólubláum og hvítum. Hann bar stóra gullkórónu á höfði og var klæddur möttli úr drifhvítu og purpurarauðu líni. Og fagnaðaróp kváðu við [...]

Biblíulestur 13. apríl – Est 8.1–14

Sama dag gaf Xerxes konungur Ester drottningu hús Hamans Agagsniðja, hatursmanns Gyðinga. Mordekaí gekk fyrir konung en Ester hafði sagt honum hvers virði hann væri sér. Konungur dró af hendi [...]

Biblíulestur 12. apríl – Jóh 21.1–14

Eftir þetta birtist Jesús lærisveinunum aftur og þá við Tíberíasvatn. Hann birtist þannig: Þeir voru saman: Símon Pétur, Tómas, kallaður tvíburi, Natanael frá Kana í Galíleu, Sebedeussynirnir og tveir enn [...]

Fara efst