Biblíulestur 29. júlí – Jer 8.1–7
Þá, segir Drottinn, verða bein Júdakonunga, bein hirðmanna þeirra, bein presta og spámanna og Jerúsalembúa sótt í grafir þeirra. Þeim verður dreift móti sólinni, tunglinu og öllum her himinsins sem þeir elskuðu, þjónuðu og eltu, sem þeir leituðu úrskurðar hjá og tilbáðu. Þau verða hvorki tínd saman né grafin, þau skulu verða að áburði á akrinum. Allir sem eftir verða af þessari vondu kynslóð munu kjósa dauðann fremur en lífið, allir sem eftir verða á þeim fjölmörgu stöðum sem ég hef hrakið þá til, segir Drottinn hersveitanna.
Segðu því við þá:
Svo segir Drottinn:
Hvort falla menn og standa ekki upp aftur?
Snýr sá ekki við sem villist?
Hvers vegna hefur þetta fólk snúið baki við mér
fyrir fullt og allt?
Hvers vegna heldur það fast við svikin
og neitar að hverfa aftur til mín?
Ég lagði við hlustir og heyrði:
Þeir fara með lygi,
enginn iðrast illsku sinnar og spyr:
Hvað hef ég gert?
Allir æða áfram, hver sína leið
eins og hestur sem ryðst fram í orrustu.
Jafnvel storkurinn í loftinu
þekkir sinn ákveðna tíma,
dúfan, svalan og tranan
snúa aftur á réttum tíma.
En þjóð mín þekkir ekki
hvers Drottinn krefst.
Biblíulestur 5. mars – Opb 20.4–15
Og ég sá hásæti og menn settust í þau og þeim sem þar sátu var gefið vald til að dæma. Ég sá sálir þeirra sem höfðu verið hálshöggnir af því [...]
Biblíulestur 4. mars – Opb 19.17–20.3
Og ég sá einn engil standa inni í sólinni. Hann hrópaði hárri röddu til allra fuglanna sem flugu um himinhvolfið: „Komið, safnist saman til hinnar miklu máltíðar Guðs til þess [...]
Biblíulestur 3. mars – Opb 19.6–16
Og ég heyrði raddir sem frá miklum mannfjölda og sem nið margra vatna og sem gný frá sterkum þrumum. Þær sögðu: „Hallelúja, Drottinn Guð vor, hinn alvaldi, er konungur orðinn. [...]
Biblíulestur 2. mars – Opb 18.21–19.5
Sterkur engill tók upp stein, eins og mikinn kvarnarstein, kastaði í hafið og sagði: „Svo voveiflega mun Babýlon kollvarpast, borgin mikla, svo að engar menjar skulu eftir verða. Og hörpusláttur [...]
Biblíulestur 1. mars – Mrk 10.46–52
Þeir komu til Jeríkó. Og þegar Jesús fór út úr borginni ásamt lærisveinum sínum og miklum mannfjölda sat þar við veginn Bartímeus, sonur Tímeusar, blindur beiningamaður. Þegar hann heyrði að [...]
Biblíulestur 28. febrúar – Okv 28.1–13
Hinir ranglátu flýja þótt enginn elti þá en hinir réttlátu eru óttalausir eins og ungt ljón. Þegar uppreisn verður í landinu gerast þar margir höfðingjar en meðal skynsamra og hygginna [...]