Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 16. september – Jer 23.9–15

Um spámennina:
Hjartað í brjósti mér brestur,
öll bein mín skjálfa.
Ég er eins og drukkinn maður,
eins og maður sem er ofurölvi
vegna Drottins og vegna hans heilögu orða.
Landið er fullt af hórkörlum,
landið syrgir vegna bölvunarinnar,
beitilöndin í óbyggðunum skrælna.
Þeir hlaupa á eftir illskunni,
rangindi eru styrkur þeirra.
Bæði spámenn og prestar eru guðlausir,
ég hef jafnvel orðið var við illsku þeirra í húsi mínu,
segir Drottinn.
Þess vegna mun vegur þeirra reynast þeim háll,
þeim verður hrint út í myrkrið
og þar hrasa þeir.
Því að ég færi þeim ógæfu
árið sem þeim verður refsað, segir Drottinn.

Á meðal spámannanna í Samaríu
hef ég einnig séð andstyggilegt athæfi:
Þeir spáðu í nafni Baals
og leiddu þjóð mína, Ísrael, afvega.
Og meðal spámannanna í Jerúsalem
hef ég séð hryllilegt athæfi.
Þeir hórast og ljúga,
styðja illvirkja,
svo að enginn þeirra hverfur frá illri breytni sinni.
Fyrir mér eru þeir allir orðnir eins og Sódóma,
borgarbúar eins og Gómorra.
Þess vegna segir Drottinn hersveitanna um spámennina:
Ég gef þeim malurt að eta
og eitrað vatn að drekka
því að siðleysið hefur breiðst út um allt landið
frá spámönnunum í Jerúsalem.

Biblíulestur 25. apríl – Okv 29.1–13

Þeim sem oft hefur verið átalinn en þrjóskast við verður skyndilega hrundið og engin lækning fæst. Þegar réttlátum vex máttur gleðst þjóðin en þegar ranglátir drottna stynur þjóðin. Sá sem [...]

Biblíulestur 24. apríl – Mrk 3.1–19

Öðru sinni gekk Jesús í samkunduhús. Þar var maður með visna hönd og höfðu þeir nánar gætur á Jesú hvort hann læknaði hann á hvíldardegi. Þeir hugðust kæra hann. Og [...]

Fara efst