Biblíulestur 17. september – Jer 23.16–32
Svo segir Drottinn hersveitanna:
Hlustið ekki á orð spámannanna.
Þeir flytja yður boðskap
en þeir blekkja yður,
þeir flytja uppspunnar sýnir
og ekki af vörum Drottins.
Þeir segja sífellt við þá sem fyrirlíta orð Drottins:
„Þér hljótið heill.“
Og við hvern sem fylgir þverúð eigin hugar segja þeir:
„Engin ógæfa kemur yfir yður.“
En hver hefur staðið í ráði Drottins,
séð hann og heyrt orð hans?
Hver hefur hlýtt á orð hans og boðað það?
Sjá, stormur Drottins brýst fram,
hvirfilbylur steypist yfir höfuð hinna óguðlegu.
Reiði Drottins slotar ekki
fyrr en hann hefur framkvæmt og fullkomnað
fyrirætlanir hjarta síns.
Síðar meir munuð þér skilja það.
Ég sendi ekki þessa spámenn,
samt hlaupa þeir,
ég talaði ekki til þeirra,
samt spá þeir.
Hefðu þeir verið í ráði mínu,
þá hefðu þeir boðað þjóð minni orð mín
og snúið henni frá villu síns vegar
og vondri breytni.
Er ég aðeins Guð í nánd? segir Drottinn,
en ekki Guð í fjarlægð?
Getur nokkur falist í fylgsnum
þar sem ég get ekki séð hann? spyr Drottinn.
Er það ekki ég
sem fylli bæði himin og jörð? spyr Drottinn.
Ég hef heyrt hvað spámennirnir, sem boða lygi í mínu nafni, segja: „Mig dreymdi draum, mig dreymdi draum.“ Hve lengi getur þetta gengið? Er nafn mitt í huga þeirra spámanna sem boða lygi og blekkingu úr eigin hjarta?
Þeir reyna að fá þjóð mína til að gleyma nafni mínu með draumunum sem þeir segja hver öðrum, rétt eins og forfeður þeirra gleymdu nafni mínu vegna Baals. Sá spámaður sem hefur dreymt draum segir aðeins eigin draum en sá sem hefur mitt orð flytur orð mitt í sannleika.
Hvað er sameiginlegt hálmstrái og korni? spyr Drottinn.
Er orð mitt ekki eins og eldur? spyr Drottinn,
eins og hamar sem molar kletta?
Ég snýst gegn spámönnunum, segir Drottinn,
af því að þeir stela orðum mínum
hver frá öðrum.
Nú snýst ég gegn spámönnunum, segir Drottinn. Þeir nota eigin tungu til að flytja boð frá Guði. Nú snýst ég gegn spámönnunum sem segja logna drauma, segir Drottinn, og blekkja þjóð mína með lygum sínum og raupi. Ég hef hvorki sent þá né gefið þeim fyrirmæli, þeir eru þessari þjóð til einskis gagns, segir Drottinn.
Biblíulestur 4. maí – Mrk 6.1–13
Þaðan fór Jesús og kom í ættborg sína og lærisveinar hans fylgdu honum. Þegar hvíldardagur var kominn tók hann að kenna í samkundunni. Fjöldinn sem á hlýddi undraðist stórum. Menn [...]
Biblíulestur 3. maí – Jóh 15.12–17
Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. [...]
Biblíulestur 2. maí – Slm 119.33–48
Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna og ég mun fylgja honum allt til enda. Veit mér skilning til að halda lögmál þitt og varðveita það af öllu hjarta. Leið mig [...]
Biblíulestur 1. maí – Mrk 5.21–43
Þegar Jesús kom aftur yfir um á bátnum safnaðist að honum mikill mannfjöldi þar sem hann var við vatnið. Þar kom og einn af samkundustjórunum, Jaírus að nafni, og er [...]
Biblíulestur 30. apríl – Mrk 5.1–20
Þeir komu nú yfir um vatnið í byggð Gerasena. Og um leið og Jesús sté úr bátnum kom maður á móti honum frá gröfunum, haldinn óhreinum anda. Hann hafðist við [...]
Biblíulestur 29. apríl – Mrk 4.21–41
Og Jesús sagði við þá: „Ekki bera menn inn ljós og setja það undir mæliker eða bekk. Er það ekki sett á ljósastiku? Því að ekkert er hulið að það [...]