Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 1. ágúst – Slm 120 og 121

Sálmur 120
Ég ákalla Drottin í nauðum mínum
og hann bænheyrir mig.
Drottinn, bjarga mér frá ljúgandi vörum
og tælandi tungum.
Hvernig mun hann hegna þér,
hvað láta koma yfir þig,
svikula tunga?
Hvesstar örvar hermanns
ásamt glóandi kolum.
Vei mér því að ég dvelst í Mesek,
verð að búa hjá tjaldbúðum Kedars.
Of lengi hef ég búið
hjá þeim er friðinn hata.
Þegar ég tala um frið
vilja þeir ófrið.

Sálmur 121
Ég hef augu mín til fjallanna,
hvaðan kemur mér hjálp?
Hjálp mín kemur frá Drottni,
skapara himins og jarðar.
Hann mun ekki láta fót þinn skriðna,
vörður þinn blundar ekki.
Nei, hann blundar ekki og sefur ekki,
hann, vörður Ísraels.
Drottinn er vörður þinn,
Drottinn skýlir þér,
hann er þér til hægri handar.
Um daga mun sólarhitinn ekki vinna þér mein
né heldur tunglið um nætur.
Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu,
hann mun vernda sál þína.
Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu
héðan í frá og að eilífu.

Biblíulestur 23. mars – Hlj 3.42–66

Vér höfum syndgað og verið óhlýðnir, þú hefur ekki fyrirgefið, þú sveipaðir þig reiði, ofsóttir oss og deyddir vægðarlaust. Þú sveipaðir þig skýi svo að engin bæn kemst í gegn. [...]

Biblíulestur 22. mars – Mrk 10.35–45

Þá komu til Jesú Jakob og Jóhannes, synir Sebedeusar, og sögðu við hann: „Meistari, okkur langar að þú gerir fyrir okkur það sem við ætlum að biðja þig.“ Hann spurði [...]

Biblíulestur 21. mars – Slm 118.15–29

Fagnaðar- og siguróp kveða við í tjöldum réttlátra: „Hægri hönd Drottins vinnur máttarverk, hægri hönd Drottins er upphafin, hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.“ Ég mun eigi deyja heldur lifa og [...]

Biblíulestur 19. mars – Hlj 3.1–20

Ég er maðurinn sem hefur þjáðst undir reiðisvipu hans. Mig hefur hann hrakið burt, út í myrkur og niðdimmu. Gegn mér snýr hann hendi sinni án afláts allan daginn. Hann [...]

Biblíulestur 18. mars – Hlj 2.18–22

Hrópa hátt til Drottins, þú mærin, dóttir Síonar. Lát tárin renna eins og læk dag og nótt, unn þér engrar hvíldar, lát auga þitt ekki hvílast. Rís á fætur! Kveina [...]

Fara efst