Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 19. september – Slm 128

Sæll er hver sá er óttast Drottin
og gengur á hans vegum.
Afla handa þinna skalt þú njóta,
sæll ert þú, vel farnast þér.
Kona þín er sem frjósamur vínviður
inni í húsi þínu,
börn þín sem teinungar olíutrésins
umhverfis borð þitt.
Sannarlega hlýtur slíka blessun sá maður
er óttast Drottin.
Drottinn blessi þig frá Síon
svo að þú fáir séð hamingju Jerúsalem
alla ævidaga þína
og séð barnabörn þín.
Friður sé yfir Ísrael.

Biblíulestur 15. maí – Mrk 8.14–26

Lærisveinarnir höfðu gleymt að taka brauð, höfðu ekki nema eitt brauð með sér í bátnum. Jesús áminnti þá og sagði: „Gætið ykkar, varist súrdeig farísea og súrdeig Heródesar.“ En þeir [...]

Biblíulestur 12. maí – Mrk 7.31–37

Síðan hélt Jesús úr Týrusarbyggðum, um Sídon og yfir Dekapólisbyggðir miðjar til Galíleuvatns. Þá færa menn til hans daufan og málhaltan mann og biðja hann að leggja hönd sína yfir [...]

Biblíulestur 11. maí – Mrk 7.14–30

Aftur kallaði Jesús til sín mannfjöldann og sagði: „Heyrið mig öll og skiljið. Ekkert er það utan mannsins er saurgi hann þótt inn í hann fari. Hitt saurgar manninn sem [...]

Fara efst