Biblíulestur 20. september – Jóh 11.1, 3, 17–27
Maður sá var sjúkur er Lasarus hét, frá Betaníu, þorpi Maríu og Mörtu, systur hennar. … Nú gerðu systurnar Jesú orðsending: „Drottinn, sá sem þú elskar er sjúkur.“
Þegar Jesús kom varð hann þess vís að Lasarus hafði verið fjóra daga í gröfinni. Betanía var nálægt Jerúsalem, hér um bil fimmtán skeiðrúm þaðan.
Margir Gyðingar voru komnir til Mörtu og Maríu til að hugga þær eftir bróðurmissinn.
Þegar Marta frétti að Jesús væri að koma fór hún á móti honum en María sat heima. Marta sagði við Jesú: „Drottinn, ef þú hefðir verið hér væri bróðir minn ekki dáinn. En einnig nú veit ég að Guð mun gefa þér hvað sem þú biður hann um.“
Jesús segir við hana: „Bróðir þinn mun upp rísa.“ Marta segir: „Ég veit að hann rís upp í upprisunni á efsta degi.“
Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?“
Hún segir við hann: „Já, Drottinn. Ég trúi að þú sért Kristur, Guðs sonur, sem koma skal í heiminn.“
Biblíulestur 22. maí – Heb 5.1–14
Sérhver æðsti prestur er tekinn úr flokki manna og settur í þágu manna til að þjóna frammi fyrir Guði og bera fram gáfur og fórnir fyrir syndir. Hann getur verið [...]
Biblíulestur 21. maí – Heb 4.1–16
Fyrirheitið um að ganga inn til hvíldar hans stendur enn, vörumst því að nokkurt ykkar verði til þess að dragast aftur úr. Fagnaðarerindið var okkur boðað eigi síður en þeim. [...]
Biblíulestur 20. maí – Heb 3.1–19
Helguðu vinir sem hafið fengið köllun til himinsins. Horfið til Jesú, postula og æðsta prests þeirrar trúar sem við játum. Hann var trúr Guði, er hafði skipað hann, eins og [...]
Biblíulestur 19. maí – Heb 2.1–18
Þess vegna ber okkur að gefa því enn betur gaum er við höfum heyrt svo að við berumst eigi afleiðis. Fyrst orðið, sem englar fluttu, hefur reynst stöðugt og þau [...]
Biblíulestur 18. maí – Heb 1.1–14
Guð talaði fyrrum oftsinnis og með mörgu móti til feðranna fyrir munn spámannanna. En nú í lok þessara daga hefur hann til okkar talað í syni sínum sem hann setti [...]
Biblíulestur 17. maí – Jóh 17.9–17
Ég bið fyrir þeim. Ég bið ekki fyrir heiminum heldur fyrir þeim sem þú hefur gefið mér því að þeir eru þínir og allt mitt er þitt og þitt er [...]