Biblíulestur 3. ágúst – Jer 9.9–20
Hefjið grát og kvein yfir fjöllunum
og harmljóð yfir beitilöndunum í auðninni
því að þau eru sviðin, enginn fer þar um,
baul hjarðanna heyrist þar ekki lengur.
Fuglar himinsins og búsmalinn
er allur flúinn og horfinn.
Ég geri Jerúsalem að rúst,
bæli handa sjakölum.
Borgirnar í Júda geri ég að auðn
þar sem enginn býr.
Hver er svo vitur að hann skilji þetta? Hverjum hefur munnur Drottins sagt þetta svo að hann geti boðað það? Hvers vegna er landið lagt í eyði? Hvers vegna er það sviðið eins og eyðimörkin þar sem enginn fer um?
Drottinn svarar: Af því að þeir brutu lögin sem ég setti þeim. Þeir hlustuðu hvorki á boð mín né fylgdu þeim, heldur fylgdu þeir þverúð eigin hjarta og eltu Baalana eins og feður þeirra höfðu kennt þeim.
Þess vegna segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Ég gef þessari þjóð malurt að eta og eitrað vatn að drekka. Ég tvístra þeim meðal þjóða sem hvorki þeir né feður þeirra hafa þekkt og sendi sverðið á eftir þeim, þar til ég hef tortímt þeim. Svo segir Drottinn hersveitanna: Áttið yður. Kallið á grátkonur, sækið kunnáttukonur. Þær eiga að koma strax og hefja harmakvein yfir oss svo að augu vor fljóti í tárum og þau streymi af hvörmum vorum.
Hlustið, harmakvein heyrist frá Síon:
Æ, vér erum hart leiknir.
Vér erum skammarlega niðurlægðir.
Vér verðum að yfirgefa landið,
höfum verið reknir úr húsum vorum.
Já, hlýðið, konur, á orð Drottins,
eyru yðar nemi orðin af munni hans.
Kennið dætrum yðar harmljóð
og hver annarri sorgarkvæði.
Dauðinn steig upp í glugga vorn,
hann kom inn í hallir vorar,
hann þrífur börnin af götunni,
unglingana af torgunum.
Biblíulestur 9. apríl – Est 6.1–14
Um nóttina varð konungur andvaka. Bauð hann þá að komið væri til sín með Annálabókina, bók þá sem geymdi minnisverð tíðindi, og var lesið úr henni fyrir hann. Þar fannst [...]
Biblíulestur 8. apríl – Est 5.1–14
Á þriðja degi klæddist Ester drottningarskrúða sínum og gekk inn í innri hallargarðinn andspænis konungshöllinni sjálfri. Þar sat konungur í hásæti sínu í hallarsalnum gegnt dyrum hallarinnar. Þegar konungur sá [...]
Biblíulestur 7. apríl – Est 4.4–17
Þegar þernur og geldingar Esterar komu til hennar og sögðu henni frá þessu var drottningu mjög brugðið. Hún lét senda Mordekaí föt svo að hann gæti skipt á þeim og [...]
Biblíulestur 6. apríl – Jóh 20.11–18
En María stóð úti fyrir gröfinni og grét. Grátandi laut hún inn í gröfina og sá tvo engla í hvítum klæðum sitja þar sem líkami Jesú hafði legið, annan til [...]
Biblíulestur 5. apríl – Matt 28.1–10
Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina. Þá varð landskjálfti mikill því engill Drottins sté niður [...]
Biblíulestur 4. apríl – Matt 27.62–66
Næsta dag, hvíldardaginn, gengu æðstu prestarnir og farísearnir saman fyrir Pílatus og sögðu: „Herra, við minnumst þess að svikari þessi sagði í lifanda lífi: Eftir þrjá daga rís ég upp. [...]