Biblíulestur 11. september – Jer 22.1–12
Svo segir Drottinn:
Farðu niður að höll Júdakonungs og segðu: Hlýddu á orð Drottins, Júdakonungur, sem situr í hásæti Davíðs, þú sjálfur, hirðmenn þínir og þjóð, þér sem gangið um þessi hlið. Svo segir Drottinn: Framfylgið rétti og réttlæti. Bjargið þeim sem rændur hefur verið úr greipum kúgarans. Hafið ekkert ranglega af aðkomumanni, munaðarleysingja eða ekkju. Kúgið engan. Úthellið ekki saklausu blóði á þessum stað. Ef þér framfylgið þessu boði munu konungar, sem sitja í hásæti Davíðs, fara um þetta hlið. Þeir sjálfir, hirðmenn þeirra og þjóð munu koma akandi í vögnum og ríðandi á hestum. En ef þér hlýðið ekki þessum orðum sver ég við sjálfan mig, segir Drottinn, að þessi höll verður lögð í rúst.
Svo segir Drottinn um höll konungsins í Júda: Fyrir mér ertu sem Gíleað, sem tindur Líbanons, en ég sver að ég mun gera þig að auðn, að óbyggðri borg.
Ég helga eyðendur gegn þér. Þeir munu höggva niður voldug sedrustré þín og varpa þeim á eld.
Margar þjóðir munu fara fram hjá þessari borg. Þegar menn spyrja hverjir aðra: „Hvers vegna hefur Drottinn farið svona með þessa miklu borg?“ verður svarað: „Af því að þeir sniðgengu sáttmálann við Drottin, Guð sinn, tilbáðu aðra guði og þjónuðu þeim.“
Grátið ekki hinn dauða og syrgið hann ekki. Nei, grátið þann sem varð að fara því að hann snýr ekki heim, hann mun ekki sjá föðurland sitt aftur. Því að svo segir Drottinn um Sallúm Jósíason Júdakonung sem varð konungur eftir föður sinn en varð að yfirgefa þennan stað: Hann snýr ekki aftur hingað því að hann verður fluttur í útlegð og þar mun hann deyja. Þetta land mun hann aldrei framar líta.
Biblíulestur 29. mars – Mrk 14.3–9
Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð [...]
Biblíulestur 28. mars – Okv 28.14–28
Sæll er sá maður sem ávallt er var um sig en sá sem herðir hjarta sitt fellur í ógæfu. Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn, svo er ranglátur drottnari [...]
Biblíulestur 27. mars – Est 1.21–2.7
Þessi ráð féllu konungi og höfðingjum hans vel í geð og gerði konungur eins og Memúkan hafði lagt til. Hann lét senda boð um öll héruð konungsríkisins, til hvers héraðs [...]
Biblíulestur 26. mars – Est 1.1–20
Xerxes konungur, sá er ríkti yfir hundrað tuttugu og sjö héruðum allt frá Indlandi til Eþíópíu, sat að völdum í virkisborginni Súsa. Á þriðja stjórnarári sínu bauð hann öllum höfðingjum [...]
Biblíulestur 25. mars – Hlj 5.1–22
Minnstu þess, Drottinn, hvað hefur á oss dunið, lít þú á og sjá smán vora. Arfleifð vor er komin í hendur framandi manna, húsin í hendur útlendinga. Vér erum orðin [...]
Biblíulestur 24. mars – Hlj 4.1–22
Hversu blakkt er gullið orðið, umbreyttur málmurinn dýri, helgum steinum er sóað á öllum gatnamótum. Dýrmætir synir Síonar voru jafnvægir skíragulli, nú eru þeir lagðir að jöfnu við leirker, handaverk [...]