Biblíulestur 25. febrúar – Opb 17.3–18
Og andinn kom yfir mig og engillinn leiddi mig út í eyðimörk. Þar sá ég konu sitja á skarlatsrauðu dýri, alsettu guðlöstunar nöfnum og hafði það sjö höfuð og tíu horn. Konan var klædd í purpura og skarlat og skrýdd gulli, gimsteinum og perlum. Hún hafði í hendi sér gullbikar, fullan af viðurstyggð og óhreinindum af saurlifnaði hennar. Og á enni hennar var ritað nafn, leyndardómur: Babýlon hin mikla, móðir alls saurlifnaðar og svívirðu á jörðunni. Og ég sá að konan var drukkin af blóði hinna heilögu og af blóði votta Jesú. Og ég undraðist stórlega er ég leit hana.
Og engillinn sagði við mig: „Hví ertu forviða? Ég mun segja þér leyndardóm konunnar og dýrsins með höfuðin sjö og hornin tíu sem ber hana: Dýrið, sem þú sást, var, en er ekki, og það mun stíga upp frá undirdjúpinu og fara til glötunar. Og þeir sem á jörðu búa og eiga ekki frá grundvöllun veraldar nöfn sín skráð í lífsins bók munu undrast er þeir sjá dýrið sem var og er ekki og kemur aftur.
Hér reynir á skilning og speki. Höfuðin sjö eru sjö fjöll sem konan situr á. Það eru líka sjö konungar. Fimm eru fallnir, einn er nú uppi, annar er ókominn og er hann kemur á hann að vera stutt. Og dýrið, sem var en er ekki, er einmitt hinn áttundi og er af þeim sjö og fer til glötunar.
Og hornin tíu, sem þú sást, eru tíu konungar sem enn hafa eigi tekið við ríki heldur fá vald sem konungar eina stund ásamt dýrinu. Þessir hafa allir eitt ráð og ljá dýrinu mátt sinn og vald. Þessir munu heyja stríð við lambið. Og lambið og þeir sem með því eru, hinir kölluðu og útvöldu og trúu, munu sigra þá – því að lambið er Drottinn drottna og konungur konunga.“
Og engillinn segir við mig: „Vötnin, sem þú sást, þar sem skækjan situr, eru lýðir og fólk, þjóðir og tungur. Og hornin tíu, sem þú sást, og dýrið munu hata skækjuna og svipta hana öllu og skilja hana eftir nakta. Þau munu eta hold hennar og brenna hana í eldi því að Guð hefur lagt þeim í brjóst að gera vilja sinn og vera ásátt um að fela dýrinu að ráða ríkjum, allt til þess er orð Guðs koma fram. Og konan, sem þú sást, er borgin mikla sem ríkir yfir konungum jarðarinnar.“
Biblíulestur 7. febrúar – Kól 2.6–23
Þið hafið tekið á móti Kristi, Drottni Jesú. Lifið því í honum. Verið rótfest í honum og byggð á honum, staðföst í trúnni, eins og ykkur hefur verið kennt, og [...]
Biblíulestur 6. febrúar – Mrk 10.17–31
Þegar Jesús var að leggja af stað kom maður hlaupandi, féll á kné fyrir honum og spurði hann: „Góði meistari, hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft [...]
Biblíulestur 5. febrúar – Matt 25.14–30
Svo er um himnaríki sem mann er ætlaði úr landi. Hann kallaði á þjóna sína og fól þeim eigur sínar. Einum fékk hann fimm talentur, öðrum tvær og þeim þriðja [...]
Biblíulestur 4.2.2023 – Slm 42.1–6
Eins og hindin þráir vatnslindir þráir sál mín þig, ó Guð. Sál mína þyrstir eftir Guði, hinum lifanda Guði, hvenær mun ég fá að koma og sjá auglit Guðs? Tár [...]
Biblíulestur 3. febrúar – Mrk 9.2–13
Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum [...]
Biblíulestur 2. febrúar – Matt 26.36–46
Þá kemur Jesús með þeim í garð er heitir Getsemane og hann segir við lærisveinana: „Setjist hér meðan ég fer og biðst fyrir þarna.“ Hann tók með sér þá Pétur [...]