Biblíulestur – 27. október – 1Þess 2.13–20
Og þess vegna þakka ég líka Guði án afláts því að þegar þið veittuð viðtöku orði Guðs, sem ég boðaði, þá tókuð þið ekki við því sem manna orði heldur sem Guðs orði – eins og það í sannleika er og það sýnir kraft sinn í ykkur sem trúið. Þið hafið, systkin, tekið ykkur til fyrirmyndar söfnuði Guðs í Júdeu sem eru í Kristi Jesú. Því að þið hafið þolað hið sama af löndum ykkar sem þeir urðu að þola af Gyðingum er bæði líflétu Drottin Jesú og spámennina og hafa ofsótt okkur. Þeir eru Guði eigi þóknanlegir og öllum mönnum mótsnúnir. Þeir vilja meina mér að tala til heiðingjanna til þess að þeir megi verða hólpnir. Þannig fylla þeir stöðugt mæli synda sinna. En reiðin er þá líka yfir þá komin um síðir.
En ég, bræður og systur, sem um stundarsakir hef verið skilinn frá ykkur að líkamanum til en ekki huganum, hef þráð ykkur mjög og gert mér allt far um að fá að sjá ykkur aftur. Þess vegna ætlaði ég að koma til ykkar, ég, Páll, oftar en einu sinni en Satan hefur hamlað því. Hver er von mín eða gleði eða sigursveigurinn sem ég miklast af? Eruð það ekki einmitt þið, frammi fyrir Drottni vorum Jesú við komu hans? Já, þið eruð vegsemd mín og gleði.
Biblíulestur 1. maí – Jóh 13.21–38
Þegar Jesús hafði sagt þetta varð honum mjög þungt um hjarta og hann sagði beinum orðum: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig.“ Lærisveinarnir litu hver [...]
Biblíulestur 30. apríl – Jóh 14.1–11
„Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. Í húsi föður míns eru margar vistarverur. Væri ekki svo hefði ég þá sagt yður að ég færi burt [...]
Biblíulestur 29. apríl – Okv 14.1–19
Viska kvennanna reisir húsið en fíflska þeirra rífur það niður með berum höndum. Sá sem breytir rétt óttast Drottin en sá sem fyrirlítur hann fer villur vegar. Í munni heimskingjans [...]
Biblíulestur 28. apríl – Lúk 5.1–11
Nú bar svo til að Jesús stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð. Þá sá hann tvo báta við vatnið en fiskimennirnir voru [...]
Biblíulestur 27. apríl – 1Kor 15.35–58
En nú kynni einhver að spyrja: „Hvernig rísa dauðir upp? Hvaða líkama hafa þeir þegar þeir koma?“ Heimskulega spurt! Það sem þú sáir lifnar ekki aftur nema það deyi. Og [...]
Biblíulestur 26. apríl – 1Kor 15.20–34
En nú er Kristur upprisinn frá dauðum, frumgróði þeirra sem sofnuð eru. Eins og dauðinn kom með manni, þannig kemur upprisa dauðra með manni. Eins og allir deyja vegna sambands [...]