Biblíulestur 11. apríl – Slm 119.1–16
Sælir eru grandvarir,
þeir er fram ganga í lögmáli Drottins.
Sælir eru þeir er halda boð hans
og leita hans af öllu hjarta,
eigi fremja ranglæti
en ganga á vegum hans.
Þú hefur gefið skipanir þínar
til þess að þeim skuli hlýtt í hvívetna.
Ó, að breytni mín mætti vera staðföst
svo að ég varðveiti lög þín.
Þá verð ég ekki til skammar
er ég gef gaum að öllum boðum þínum.
Ég skal þakka þér af einlægu hjarta
er ég hef numið þín réttlátu ákvæði.
Ég vil gæta laga þinna,
yfirgef mig aldrei.
Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum?
Með því að gefa gaum að orði þínu.
Ég leita þín af öllu hjarta,
lát mig eigi villast frá boðum þínum.
Ég geymi orð þín í hjarta mínu
svo að ég syndgi ekki gegn þér.
Lofaður sért þú, Drottinn,
kenn mér lög þín.
Með vörum mínum tel ég upp
öll ákvæði munns þíns.
Ég gleðst yfir vegi laga þinna
eins og yfir gnótt auðæfa.
Ég vil íhuga fyrirmæli þín
og gefa gaum að vegum þínum.
Ég leita unaðar í lögmáli þínu,
gleymi eigi orði þínu.
Biblíulestur 25. september – Jón 4.1–11
Jónas fylltist mikilli gremju, honum brann reiðin og hann sagði við Drottin: „Ó, Drottinn! Var það ekki einmitt þetta sem ég sagði áður en ég fór að heiman? Það var [...]
Biblíulestur 24. september – Róm 5.1–11
Réttlætt af trú höfum við því frið við Guð sakir Drottins vors Jesú Krists. Hann hefur veitt okkur aðgang að þeirri náð sem við lifum í og við fögnum í [...]
Biblíulestur 24. september – Jóh 11.1, 3, 17–27
Maður sá var sjúkur er Lasarus hét, frá Betaníu, þorpi Maríu og Mörtu, systur hennar. ... Nú gerðu systurnar Jesú orðsending: „Drottinn, sá sem þú elskar er sjúkur.“ ... Þegar [...]
Biblíulestur 23. september – Róm 3.21–31
En nú hefur Guð opinberað réttlæti sitt sem lögmálið og spámennirnir vitna um og byggist ekki á lögmáli. Það er: Réttlæti trúarinnar sem Guð gefur öllum þeim sem trúa á [...]
Biblíulestur 23.9.2023 – Slm 60.1–14
Til söngstjórans. Lag: Vitnisburðarliljan. Miktam eftir Davíð, til fræðslu, þá er hann barðist við Sýrlendinga frá Mesópótamíu og Sýrlendinga frá Sóba og Jóab sneri við og vann sigur á Edómítum [...]
Biblíulestur 22. september – Jón 3.1–10
Orð Drottins kom öðru sinni til Jónasar: „Legg þú af stað og far til Níníve, hinnar miklu borgar, og prédikaðu fyrir henni þann boðskap sem ég mun greina þér frá.“ [...]