Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 12. maí – Mrk 7.31–37

Síðan hélt Jesús úr Týrusarbyggðum, um Sídon og yfir Dekapólisbyggðir miðjar til Galíleuvatns. Þá færa menn til hans daufan og málhaltan mann og biðja hann að leggja hönd sína yfir hann. Jesús leiddi hann afsíðis frá fólkinu, stakk fingrum sínum í eyru honum og vætti tungu hans með munnvatni sínu. Þá leit hann upp til himins, andvarpaði og sagði við hann: „Effaþa,“ það er: Opnist þú.
Og eyru hans opnuðust og haft tungu hans losnaði og hann talaði skýrt. Jesús bannaði þeim að segja þetta neinum en svo mjög sem hann bannaði þeim því frekar sögðu þeir frá því. Menn undruðust mjög og sögðu: „Allt gerir hann vel, daufa lætur hann heyra og mállausa mæla.“

Biblíulestur 28. mars – Matt 26.17–30

Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: „Hvar vilt þú að við búum þér páskamáltíðina?“ Hann mælti: „Farið til ákveðins manns í borginni og segið við [...]

Biblíulestur 24. mars – Lúk 19.28–40

Þá er Jesús hafði þetta mælt hélt hann á undan áfram upp til Jerúsalem. Þegar hann nálgaðist Betfage og Betaníu við Olíufjallið, sem svo er nefnt, sendi hann tvo lærisveina [...]

Biblíulestur 23. mars – Slm 72.1–11

Guð, fel konungi dóma þína og konungssyni réttlæti þitt svo að hann dæmi lýð þinn í réttlæti og þína þjáðu með sanngirni. Fjöllin beri þjóðinni frið og hæðirnar réttlæti. Hann [...]

Fara efst