Guð, fel konungi dóma þína
og konungssyni réttlæti þitt
svo að hann dæmi lýð þinn í réttlæti
og þína þjáðu með sanngirni.
Fjöllin beri þjóðinni frið
og hæðirnar réttlæti.
Hann láti hina þjáðu meðal þjóðarinnar ná rétti sínum
og veiti hinum snauðu hjálp
og kremji kúgarann.
Þá mun hann lifa meðan sólin skín
og tunglið ber birtu frá kyni til kyns.
Hann falli sem regn á slægjuland,
gróðrarskúr sem vætir landið.
Um daga hans mun hinn réttláti blómstra
og friður og farsæld uns tunglið er ekki framar til.
Hann mun ríkja frá hafi til hafs
og frá Fljótinu til endimarka jarðar.
Fjandmenn hans munu falla á kné fyrir honum
og óvinir hans sleikja duftið.
Konungar frá Tarsis og frá fjarlægum eylöndum
koma færandi hendi,
konungarnir frá Saba og Seba
munu færa honum skatt.
Allir konungar skulu lúta honum,
allar þjóðir heims þjóna honum