Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 11. maí – Mrk 7.14–30

Aftur kallaði Jesús til sín mannfjöldann og sagði: „Heyrið mig öll og skiljið. Ekkert er það utan mannsins er saurgi hann þótt inn í hann fari. Hitt saurgar manninn sem út frá honum fer.“ [ Ef einhver hefur eyru að heyra, hann heyri!]
Þegar Jesús var kominn inn frá fólkinu spurðu lærisveinar hans hann um líkinguna. Og hann segir við þá: „Eruð þið einnig svo skilningslausir? Skiljið þið ekki að ekkert sem fer inn í manninn utan frá getur saurgað hann? Því að ekki fer það inn í hjarta hans heldur maga og út síðan í safnþróna.“ Þannig lýsti hann alla fæðu hreina. Og hann sagði: „Það sem fer út frá manninum það saurgar manninn. Því að innan frá, úr hjarta mannsins, koma hinar illu hugsanir, saurlifnaður, þjófnaður, manndráp, hórdómur, ágirnd, illmennska, sviksemi, taumleysi, öfund, lastmælgi, hroki, heimska. Allt þetta illa kemur innan að og saurgar manninn.“

Jesús tók sig upp þaðan og hélt til byggða Týrusar. Þar fór hann inn í hús og vildi engan láta vita. En eigi fékk hann dulist. Kona ein frétti þegar af honum og kom og féll honum til fóta en dóttir hennar hafði óhreinan anda. Konan var heiðin, ættuð úr Fönikíu sýrlensku. Hún bað Jesú að reka illa andann út af dóttur sinni. Hann sagði við hana: „Lofaðu börnunum að seðjast fyrst, ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.“
Hún svaraði honum: „Satt er það, herra, þó eta hundarnir undir borðinu af molum barnanna.“
Og Jesús sagði við hana: „Vegna þessara orða skaltu heim snúa, illi andinn er farinn úr dóttur þinni.“ Hún fór heim, fann barnið liggjandi á rúminu og illi andinn var farinn.

Biblíulestur 22. mars – Gal 5.13–26

Bræður og systur, þið voruð kölluð til að vera frjáls. Misnotið ekki frelsið í þágu eigin girnda heldur þjónið hvert öðru í kærleika. Allt lögmálið felst í þessu eina boðorði: [...]

Biblíulestur 20. mars – 1Kon 8.14–30

Þá sneri konungur sér við og blessaði allan söfnuð Ísraels en allur söfnuður Ísraels stóð. Hann sagði: „Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels. Hann hefur efnt með hendi sinni það sem [...]

Biblíulestur 19. mars – 1Kon 8.1–13

Þá safnaði Salómon til sín í Jerúsalem öllum öldungum Ísraels, öllum höfðingjum ættbálka og ætta Ísraels, til þess að flytja sáttmálsörk Drottins frá borg Davíðs, það er frá Síon. Allir [...]

Biblíulestur 18. mars – 2Mós 17.1–7

Allur söfnuður Ísraelsmanna lagði nú af stað frá Síneyðimörkinni og hélt áfram í áföngum eftir fyrirmælum Drottins. Þeir slógu upp búðum í Refídím. Af því að ekkert drykkjarvatn var þar [...]

Biblíulestur 17. mars – Jóh 18.28–19.5

Menn æðsta prestsins fóru nú með Jesú frá Kaífasi til hallar landshöfðingjans. Það var snemma morguns. Þeir fóru ekki sjálfir inn í höllina svo að þeir saurguðust ekki heldur mættu [...]

Fara efst