Biblíulestur 14. maí – Lúk 24.44–53
Og hann sagði við þau: „Meðan ég var enn meðal ykkar sagði ég ykkur: Allt sem ritað er um mig í lögmáli Móse, spámönnunum og sálmunum á að rætast.“
Síðan lauk hann upp huga þeirra að þau skildu ritningarnar. Og hann sagði við þau: „Svo er skrifað að Kristur eigi að líða og rísa upp frá dauðum á þriðja degi og að prédika skuli í nafni hans öllum þjóðum að taka sinnaskiptum og þiggja fyrirgefningu synda og hefja það í Jerúsalem. Þið eruð vottar þessa. Ég sendi ykkur andann sem faðir minn hét ykkur en verið kyrr í borginni uns þið íklæðist krafti frá hæðum.“
Síðan fór hann með þau út í nánd við Betaníu, hóf upp hendur sínar og blessaði þau. En það varð, meðan hann var að blessa þau, að hann skildist frá þeim og var upp numinn til himins. En þau féllu fram og tilbáðu hann og sneru aftur til Jerúsalem með miklum fögnuði. Og þau voru stöðugt í helgidóminum og lofuðu Guð.
Biblíulestur 9. apríl – 2Mós 14.19–31
Engill Guðs, sem fór fyrir hersveit Ísraels, færði sig aftur fyrir þá og skýstólpinn, sem var fyrir framan þá, færði sig og kom sér fyrir að baki þeim svo að [...]
Biblíulestur 8. apríl – 2Mós 14.1–18
Drottinn ávarpaði Móse og sagði: „Segðu Ísraelsmönnum að snúa við og setja búðir sínar andspænis Pí Hakírót, milli Migdóls og hafsins, gegnt Baal Sefón. Andspænis Baal Sefón skuluð þið slá [...]
Biblíulestur 7. apríl – Mrk 16.9–14
Þegar Jesús var upp risinn árla hinn fyrsta dag vikunnar birtist hann fyrst Maríu Magdalenu en út af henni hafði hann rekið sjö illa anda. Hún fór og kunngjörði þetta [...]
Biblíulestur 6. apríl – Slm 72.12–19
því að hann bjargar hinum snauða, sem hrópar á hjálp, og lítilmagnanum sem enginn hjálpar. Hann miskunnar sig yfir bágstadda og snauða og bjargar lífi hinna fátæku, frá ofbeldi og [...]
Biblíulestur 5. apríl – 1Tím 3.1–13
Það orð er satt. Sækist einhver eftir biskupsstarfi þá girnist hann göfugt hlutverk. Biskup á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur, bindindissamur, hóglátur, háttprúður, gestrisinn, góður fræðari, ekki drykkfelldur, ekki ofsafenginn, heldur [...]
Biblíulestur 4. apríl – 2Kor 6.1–13
Sem samverkamaður Krists hvet ég ykkur einnig að þið látið ekki náð Guðs, sem þið hafið þegið, verða til einskis. Hann segir: Á hagkvæmri tíð bænheyrði ég þig, og á [...]