því að hann bjargar hinum snauða, sem hrópar á hjálp,
og lítilmagnanum sem enginn hjálpar.
Hann miskunnar sig yfir bágstadda og snauða
og bjargar lífi hinna fátæku,
frá ofbeldi og ofríki leysir hann þá
því að blóð þeirra er dýrmætt í augum hans.
Megi hann lifa og hljóti hann gull frá Saba,
sífellt biðji menn fyrir honum
og blessi hann liðlangan daginn.
Gnóttir korns verði í landinu,
bylgist það á fjallatindunum.
Verði afrakstur þess líkur Líbanonsskógi
og spretti menn upp í borgum eins og gras á velli.
Nafn hans vari að eilífu,
megi nafn hans gróa meðan sólin skín,
allar þjóðir jarðar óski sér blessunar með honum
og segi hann sælan.
Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels,
sem einn vinnur máttarverk.
Lofað sé hans dýrlega nafn um aldur og ævi
og öll jörðin fyllist dýrð hans!
Amen, amen.