Biblíulestur 28. maí – Heb 7.18–28
Hið fyrra boðorð er þar með ógilt af því að það var vanmáttugt og gagnslaust. Lögmálið gerði ekkert fullkomið. En nú höfum við öðlast betri von sem leiðir okkur nær Guði.
Þetta varð ekki án eiðs. Hinir urðu prestar án eiðs en hann með eiði þegar Guð sagði við hann: „Drottinn sór og hann mun ekki iðra þess: Þú ert prestur að eilífu.“
Þessi samanburður sýnir að Jesús er orðinn ábyrgðarmaður betri sáttmála.
Enn fremur urðu hinir prestarnir margir af því að dauðinn meinaði þeim að vera áfram. En hann er að eilífu og hefur prestdóm þar sem ekki verða mannaskipti. Þess vegna getur hann og til fulls frelsað þá sem hann leiðir fram fyrir Guð þar sem hann ávallt lifir til að biðja fyrir þeim.
Slíks æðsta prests höfðum við þörf sem er heilagur, svikalaus, óflekkaður, greindur frá syndurum og orðinn himnunum hærri. Hann þarf ekki daglega, eins og hinir æðstu prestarnir, fyrst að bera fram fórnir fyrir eigin syndir, síðan fyrir syndir lýðsins. Það gerði hann í eitt skipti fyrir öll er hann fórnfærði sjálfum sér. Lögmálið skipar breyska menn æðstu presta en eiðurinn, er kom á eftir lögmálinu, skipar æðsta prest sem er sonur, fullkominn að eilífu.
Biblíulestur 7. júlí – Mrk 16.15–16
Jesús sagði við þá: „Farið út um allan heim og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni. Sá sem trúir og skírist mun hólpinn verða en sá sem trúir ekki mun dæmdur verða.
Biblíulestur 6. júlí – Slm 78.1–8
Hlýð þú, þjóð mín, á kenningu mína, legg eyrun að ræðu munns míns. Ég vil opna munn minn með líkingu og túlka liðna tíð. Það sem vér höfum heyrt og [...]
Biblíulestur 5. júlí – 1Kor 15.20–34
En nú er Kristur upprisinn frá dauðum, frumgróði þeirra sem sofnuð eru. Eins og dauðinn kom með manni, þannig kemur upprisa dauðra með manni. Eins og allir deyja vegna sambands [...]
Biblíulestur 4. júlí – 1Kor 15.1–19
Ég minni ykkur, systkin, á fagnaðarerindið sem ég boðaði ykkur, sem þið og veittuð viðtöku og þið standið einnig stöðug í. Það mun og frelsa ykkur ef þið haldið fast [...]
Biblíulestur 3. júlí – Esk 37.1–14
Hönd Drottins kom yfir mig. Hann leiddi mig burt í anda sínum og lét mig nema staðar í dalbotninum miðjum. Hann var þakinn beinum. Hann leiddi mig umhverfis þau á [...]
Biblíulestur 2. júlí – 1Jóh 3.11–24
Því að þetta er sá boðskapur sem þið hafið heyrt frá upphafi: Við eigum að elska hvert annað. Ekki vera eins og Kain sem var af hinum vonda og myrti [...]