Biblíulestur 16. apríl – Mrk 1.1–15
Upphaf fagnaðarerindisins um Jesú Krist, Guðs son. Svo er ritað hjá Jesaja spámanni:
Ég sendi sendiboða minn á undan þér,
hann á að greiða þér veg.
Rödd hrópanda í eyðimörk:
Greiðið veg Drottins,
gerið beinar brautir hans.
Þannig kom Jóhannes skírari fram í óbyggðinni og boðaði mönnum að taka sinnaskiptum og láta skírast til fyrirgefningar synda og menn streymdu til hans frá allri Júdeubyggð og allir Jerúsalembúar og létu hann skíra sig í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar.
En Jóhannes var í klæðum úr úlfaldahári, með leðurbelti um lendar sér og át engisprettur og villihunang. Hann prédikaði svo: „Sá kemur eftir mig sem mér er máttugri og er ég ekki verður þess að krjúpa niður og leysa skóþveng hans. Ég hef skírt ykkur með vatni en hann mun skíra ykkur með heilögum anda.“
Svo bar við á þeim dögum að Jesús kom frá Nasaret í Galíleu og Jóhannes skírði hann í Jórdan. Um leið og hann sté upp úr vatninu sá hann himnana ljúkast upp og andann stíga niður yfir sig eins og dúfu. Og rödd kom af himnum: „Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.“
Þá knúði andinn hann út í óbyggðina og var hann í óbyggðinni fjörutíu daga og Satan freistaði hans. Hann hafðist við meðal villidýra og englar þjónuðu honum.
Þegar Jóhannes hafði verið tekinn höndum kom Jesús til Galíleu, prédikaði fagnaðarerindi Guðs og sagði: „Tíminn er fullnaður og Guðs ríki í nánd. Takið sinnaskiptum og trúið fagnaðarerindinu.“
Biblíulestur 20. júní – 1Sam 2.1–11
Hanna bað og sagði: Hjarta mitt fagnar í Drottni. Horn mitt er upphafið af Drottni. Ég hlæ að fjandmönnum mínum því að ég gleðst yfir hjálp þinni. Enginn er heilagur [...]
Biblíulestur 19. júní – 1Sam 1.17–28
Elí svaraði og sagði: „Farðu í friði. Guð Ísraels mun veita þér það sem þú baðst hann um.“ Hún sagði: „Megi ambátt þín finna náð fyrir augum þínum.“ Gekk hún [...]
Biblíulestur 18. júní – 1Sam 1.1–16
Í Ramataím í Efraímsfjöllum bjó maður af Súfætt. Hann hét Elkana og var sonur Jeróhams Elíhúsonar, Tóhúsonar, Súfssonar frá Efraím. Hann átti tvær eiginkonur, hét önnur Hanna en hin Peninna. [...]
Biblíulestur 17. júní – Matt 7.7–12
Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar, [...]
Biblíulestur 16. júní – Jóh 6.37–40
Allt sem faðirinn gefur mér mun koma til mín og þann sem til mín kemur mun ég alls eigi brott reka. Ég er stiginn niður af himni, ekki til að [...]
Biblíulestur 15. júní – Slm 77.1–11
Ég kalla til Guðs og hrópa, kalla til Guðs svo að hann heyri til mín. Í neyð minni leita ég til Drottins, rétti út hendur mínar um nætur og þreytist [...]