Biblíulestur 3. júní – Heb 10.1–18
Lögmálið geymir aðeins skugga hins góða sem er í vændum, ekki skýra mynd þess. Þær sömu fórnir sem ár eftir ár eru bornar fram geta því aldrei gert þá fullkomna til frambúðar sem ganga fram fyrir Guð. Hefðu ekki dýrkendur Guðs þá annars hætt að fórna ef þeir hefðu hreinsast í eitt skipti fyrir öll og væru sér ekki framar meðvitandi um synd? En með þessum fórnum er minnt á syndirnar ár hvert. Því að blóð nauta og hafra getur með engu móti numið burt syndir.
Því er það að Kristur segir þegar hann kemur í heiminn:
Fórn og gjafir hefur þú eigi viljað
en líkama hefur þú búið mér.
Brennifórnir og syndafórnir geðjuðust þér ekki.
Þá sagði ég: „Sjá, ég er kominn til að gera vilja þinn, Guð minn,
eins og ritað er í bókinni um mig.“
Fyrst segir hann: „Fórnir og gjafir og brennifórnir og syndafórnir hefur þú eigi viljað og eigi geðjaðist þér að þeim.“ En það eru einmitt þær sem fram eru bornar samkvæmt lögmálinu. Síðan segir hann: „Sjá, ég er kominn til að gera vilja þinn.“ Hann afnemur hið fyrra og staðfestir hið síðara. Þannig gerði hann það sem Guð vildi og þess vegna erum við helguð orðin að hann fórnaði sjálfum sér í eitt skipti fyrir öll.
Sérhver prestur er hvern dag bundinn við helgiþjónustu sína og ber fram margsinnis hinar sömu fórnir. Þær geta þó aldrei afmáð syndir. En Jesús bar fram eina fórn fyrir syndirnar og settist um aldur við hægri hönd Guðs og bíður þess síðan að óvinir hans verði gerðir að fótskör hans. Því að með einni fórn hefur hann um aldur fullkomnað þau er helguð verða.
Heilagur andi vitnar einnig fyrir okkur. Fyrst segir hann:
Þetta er sáttmálinn er ég mun gera við þá
eftir þá daga, segir Drottinn.
Lög mín vil ég leggja í hjörtu þeirra
og í hugskot þeirra vil ég rita þau.
Síðan segir hann:
Ég mun aldrei framar minnast synda þeirra eða lögmálsbrota.
En þar sem syndirnar eru fyrirgefnar þarf ekki framar fórn fyrir synd.
Biblíulestur 12. ágúst – Heb 2.1–13
Þess vegna ber okkur að gefa því enn betur gaum er við höfum heyrt svo að við berumst eigi afleiðis. Fyrst orðið, sem englar fluttu, hefur reynst stöðugt og þau [...]
Biblíulestur 11. ágúst – Matt 23.1–12
Þá talaði Jesús til mannfjöldans og lærisveina sinna: „Á stóli Móse sitja fræðimenn og farísear. Því skuluð þér gera og halda allt sem þeir segja yður en eftir breytni þeirra [...]
Biblíulestur 10. ágúst – Slm 78.52–64
Því næst hélt hann af stað með þjóð sína eins og fjársafn, leiddi hana eins og hjörð um eyðimörkina. Hann leiddi þá óhulta og óttalausa en óvini þeirra huldi hafið. [...]
Biblíulestur 9. ágúst – Heb 1.1–14
Guð talaði fyrrum oftsinnis og með mörgu móti til feðranna fyrir munn spámannanna. En nú í lok þessara daga hefur hann til okkar talað í syni sínum sem hann setti [...]
Biblíulestur 8. ágúst – Kól 1.12–23
þakkað föðurnum sem hefur gert ykkur fært að fá arfleifð heilagra í ljósinu. Hann hefur frelsað okkur frá valdi myrkursins og flutt okkur yfir í ríki síns elskaða sonar. Í [...]
Biblíulestur 7. ágúst – Jóh 7.25–36
Þá sögðu nokkrir Jerúsalembúar: „Er þetta ekki sá sem þeir sitja um að lífláta? Og nú er hann að tala á almannafæri og þeir segja ekkert við hann. Skyldu nú [...]