Biblíulestur 15. apríl – Est 9.20–10.3
Þessa atburði skrásetti Mordekaí. Hann sendi bréf til allra Gyðinga í öllum héruðum konungsríkis Xerxesar, jafnt nálægum sem fjarlægum, til að gera þeim skylt að halda árlega helgan fjórtánda og fimmtánda dag mánaðarins adar. Þá daga öðluðust Gyðingar frið fyrir óvinum sínum og í þeim mánuði snerist sorg þeirra í fögnuð og hryggð þeirra í hátíð. Skyldu þeir dagar verða dagar veisluhalds og fagnaðar og menn senda hver öðrum matargjafir en gefa fátækum ölmusu. Og Gyðingar lögleiddu það sem þeir höfðu þannig stofnað til og Mordekaí hafði skrifað þeim um.
Haman Hamdatason og afkomandi Agags, hatursmaður allra Gyðinga, hafði ráðgert að tortíma Gyðingum og gereyða þeim. Til þess hafði hann varpað púr, það er hlutkesti, að honum mætti takast að afmá þá og eyða þeim. En málið hafði komið fyrir konung og hann hafði þá skipað svo fyrir með bréfi að fólskubrögð þau sem Haman hugðist beita Gyðinga skyldu koma honum sjálfum í koll og hann og synir hans skyldu festir á gálga. Vegna þessa voru dagarnir nefndir púrím eftir orðinu púr. Og af þessum sökum, vegna alls sem í bréfinu stóð og vegna þess sem þeir höfðu séð eða sjálfir reynt, gerðu Gyðingar það að skyldu og lögbundinni, ófrávíkjanlegri venju, jafnt sjálfum sér, öllum niðjum sínum og þeim sem tækju Gyðingatrú, að þessir tveir dagar skyldu haldnir heilagir árlega á tilsettum tíma og samkvæmt fyrirmælunum. Þessara daga skulu menn minnast kynslóð eftir kynslóð, í hverri ætt, í hverju héraði og hverri borg svo að púrímdagarnir verði áfram helgir með Gyðingum og minningin, sem þeir varðveita, falli aldrei í gleymsku meðal niðja þeirra.
Ester drottning, dóttir Abíhaíls, veitti Gyðingnum Mordekaí skriflegt umboð til að beita öllum áhrifamætti sínum til að gera síðara bréfið um púrím að lögum. Og bréf voru send til allra Gyðinga í héruðunum hundrað tuttugu og sjö í ríki Xerxesar með árnaðar- og hughreystingarorðum til að tryggja að púrímdagar væru haldnir á réttum tíma eins og Gyðingurinn Mordekaí hafði mælt fyrir um, á sama hátt og þau fyrirmæli um föstur og harmakvein sem Gyðingar höfðu gert sér og niðjum sínum skylt að hlýða. Það var tilskipun Esterar, sem gerði ákvæðin um púrím að lögum, og var hún skráð í bók.
Xerxes konungur lagði skatt á íbúa landsins og eyjanna í hafinu. En öll stórvirki hans og hreystiverk eru skráð í árbækur Medíu- og Persíukonunga auk lýsingar á frama þeim sem Mordekaí hlotnaðist hjá konunginum, enda var Gyðingurinn Mordekaí næstur konungi að tign. Meðal Gyðinga var hann mikils metinn og vinsæll af hinum fjölmörgu ættmennum sínum því að hann bar hag þjóðar sinnar fyrir brjósti og lét sér annt um velfarnað kynstofns síns.
Biblíulestur 14. júní – 1Mós 17.1–14
Þegar Abram var níutíu og níu ára birtist Drottinn honum og sagði við hann: „Ég er Almáttugur Guð. Gakk fyrir mínu augliti og ver heill. Ég mun setja sáttmála milli [...]
Biblíulestur 13. júní – 1Kor 11.17–34
En um leið og ég gef ykkur þessi fyrirmæli get ég ekki hrósað ykkur fyrir samkomur ykkar sem eru fremur til ills en góðs. Í fyrsta lagi heyri ég að [...]
Biblíulestur 12. júní – Lúk 22.7–20
Þegar sá dagur ósýrðu brauðanna kom er slátra skyldi páskalambinu sendi Jesús þá Pétur og Jóhannes og sagði: „Farið og búið til páskamáltíðar fyrir okkur.“ Þeir sögðu við hann: „Hvar [...]
Biblíulestur 11. júní – 2Mós 16.22–36
Sjötta daginn söfnuðu þeir helmingi meira en hina dagana, tveimur gómerum á mann. Þegar allir leiðtogar fólksins komu og tjáðu Móse það sagði hann við þá: „Þetta er það sem [...]
Biblíulestur 10. júní – 2Mós 16.13–21
Um kvöldið komu lynghænsn og þöktu búðirnar en morguninn eftir hafði dögg fallið umhverfis búðirnar. Þegar döggin þornaði lá eitthvað fínkornótt yfir eyðimörkinni líkt og héla. Þegar Ísraelsmenn sáu það [...]
Biblíulestur 9. júní – Lúk 14.25–35
Mikill fjöldi fólks var Jesú samferða. Hann sneri sér við og sagði við mannfjöldann: „Enginn getur komið til mín og orðið lærisveinn minn nema hann taki mig fram yfir föður [...]